Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Hilmar Arnarson
Vista
fjölbýlishús

Friggjarbrunnur 5

113 Reykjavík

108.900.000 kr.

739.810 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2310191

Fasteignamat

98.650.000 kr.

Brunabótamat

89.120.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2011
svg
147,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 2. september 2026 kl. 16:30 til 17:30

Opið hús: Friggjarbrunnur 5, 113 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 02 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 2. september 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:30.

Lýsing

Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir fallega 4ra herbergja íbúð á 2. hæð að Friggjarbrunni 5 í Reykjavík. Gólfhiti er á allri íbúðinni. Lyfta er í húsinu og íbúðinni fylgir sérmerkt stæði í bílageymslu. Inn af bílastæði er stór sér geymsla íbúðar. Sameign er virkilega snyrtileg og vítt er til veggja í stigagangi. Einungis tvær íbúðir eru á hverri hæð. Húsið var byggt árið 2011. Íbúðin er björt með gluggum á tvo vegu og eru stofugluggar gólfssíðir. Út frá stofu eru SV-svalir. Í Úlfarsárdalnum er leik- og grunnskóli, íþróttamiðstöð Fram, sundlaug og fleira. Frábær aðstaða og þægilegir hjóla- og göngustígar um hverfið. Einnig er afar stutt út í óspillta náttúruna fyrir útivistarunnendur. 
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / [email protected] 

Eignin skiptist í forstofu, gang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, borðstofu, stofu, þvottahús og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 147,2 m2. Stæði í bílageymslu er ekki inni í þessum fermetrafjölda.


*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!

Smelltu hér og þú færð söluyfirlit strax
Nánari lýsing:
Forstofa 
er inn af einstaklega snyrtilegri sameign og rúmgóðum stigapalli með lyftu. Myndavéladyrasími og póstkassar í anddyri. Innan íbúðar eru viðarfataskápar sem ná upp í loft og á gólfi eru ljósar flísar. Parket tekur við flísum út ganginn og flæðir án þröskulda inn í flest rými íbúðar.
Herbergi I er inn af forstofu. Hvítir innbyggðir fataskápar fylla einn vegg. Parket á gólfi.
Herbergi II er með hvítum innbyggðum tvöföldum fataskáp. Parket á gólfi. 
Herbergi III er með hvítum innbyggðum tvöföldum fataskáp. Parket á gólfi. 
Eldhús er opið inn í stofurými og eru bæði flísar og parket á gólfi. Innrétting er á tveimur veggjum, önnur hvít og hin viðar. Gorenje ofn, stæði fyrir tvöfaldan ísskáp/frysti og innbyggða Electrolux uppþvottavél. Frístandandi eyja með skúffum á þrjá vegu og hægt er að sitja við eyjuna beggja megin. Eyja er úr við, steinn á borði, Bosch helluborð og háfur yfir. 
Borðstofa tengir saman eldhús og stofu. Gólfsíðir gluggar. Parket á gólfi.
Stofa/sjónvarpsrými er handan við millivegg sem skilur að eldhúsrými og hluta af stofu. Veggurinn var stækkaður og möguleiki að minnka hann á ný. Gengið er út á svalir út frá stofu. Þar eru gólfsíðir gluggar. Parket á gólfi.
Svalir snúa til suðvesturs og þegar sólar nýtur við, er hún að koma á hádegi inn á svalirnar og er fram á kvöld. Glerhandrið og nýir steingráir plastplattar á svalargólfi.
Baðherbergi er með innréttingu á tveimur veggjum. Steinn á borði og niðurfelldur vaskur. Veggfestur spegill og lýsing. Þreplaus sturta, hvítur handklæðaofn og upphengt salerni. Ljósar gólfflísar, eins og í forstofu og þvottahúsi. 
Þvottahús er inn af eldhúsi. Hvít innrétting á tveimur veggjum. Stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Skolvaskur í borðplötu og hvítar veggflísar milli efri og neðri skápa. Gólfhitastýring og rafmagnstafla er í þvottahúsi. Niðurfall í gólfi. Gluggi með opnanlegu fagi.
Bílageymsla er með sex bílastæðum og á hver íbúð eitt stæði. Þessi íbúð á eitt þeirra og er komin rafmagnshleðslustöð í stæðið.
Geymsla íbúðar er sér, staðsett við bílastæði íbúðar í bílageymslu. Birt stærð geymslu er 12,5 m2. 
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara. Gott aðgengi er fyrir hjól og vagna beint út á stétt framan við hús.
Garður er virkilega fallegur með fjölærum plöntum sunnan og vestan megin við hús og sér Reykjavíkurborg um umhirðu þess hluta lóðar. Bílastæði eru einnig úti á lóð og leiksvæði er handan við lóð húss.

Ath. Parket hefur aldrei verið pússað og innréttingar eru frá Fagus. Húsið var málað fyrir tveimur árum.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / [email protected] 

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-

RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. des. 2021
55.950.000 kr.
78.900.000 kr.
147.2 m²
536.005 kr.
14. feb. 2018
51.350.000 kr.
62.200.000 kr.
147.2 m²
422.554 kr.
20. apr. 2016
42.550.000 kr.
48.500.000 kr.
147.2 m²
329.484 kr.
25. sep. 2013
28.800.000 kr.
41.900.000 kr.
147.2 m²
284.647 kr.
6. sep. 2012
11.650.000 kr.
126.000.000 kr.
1530.8 m²
82.310 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone