Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
einbýlishús

Akrasel 14

109 Reykjavík

159.900.000 kr.

616.898 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2055140

Fasteignamat

157.350.000 kr.

Brunabótamat

132.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1976
svg
259,2 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 1. september 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús þriðjudaginn 1. september milli kl. 17:00 og 17:30

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

**Opið hús þriðjudaginn  1. september milli kl. 17:00 og 17:30**

Vel skipulagt 259m² einbýlishús á tveimur hæðum. Rúmgóð herbergi, stofur og eldhús. Garður er stór og gróinn. Aukaíbúð með sérinngangi á jarðhæð hússins sem er í úleigu. Gott útsýni er frá stofu.
 Húsið getur verið laust við kaupsamning.

Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax

Samkvæmt skráningu HMS er birt stærð eignarinnar 259,2m², þar af er bílskúr skráður 34,4m².
Húsið skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú rúmgóð herbergi og baðherbergi á efri hæð. Á neðri hæð er fjölskyldurými, herbergi og tveggja herbergja íbúð með sér inngangi.

Nánari lýsing:
Komið inn í rúmgóða flísalagað forstofu með fatahengi. Frá forstofu er komið inn í teppalagt hol sem tengir saman stofur, eldhús og svefnherbergisgang. Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með teppalögðum gólfum. Frá stofu er gengið út á rúmgóðar svalir til suðvesturs. Eldhús er einkar rúmgott og með góðum borðkrók, flísar á milli efri og neðri skápa, tengi fyrir uppþvottavél, korkur á gólfi eldhúss. Svefnherbergi á efri hæð eru þrjú talsins og öll mjög rúmgóð. Öll eru þau með fataskápum, parket á gólfum herbergja. Baðherbergi með sturtuklefa og baðkari, vegghengdu salerni og eldri innréttingu, flísar á gólfum og upp á hluta veggja.
Gengið eru niður fallegan stiga á neðri hæð. Á neðri hæð er rúmgott teppalagt fjölskyldurými. Á neðri hæð er einnig gott herbergi og lítil geymsla. Gengið er niður með húsinu til að komast að tveggja herbergja íbúð með sérinngangi. Hún skiptist í sofu, svefnherbergi, eldhús og baðherbergi. Einnig hægt að koma að aukaíbúðinni frá Seljaskógum.

Óútgrafið pláss býður upp á stækkunarmöguleika. Búið er að endurnýja alla ofna efri hæðar.

Nánari uppl.
Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - [email protected]

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík