Opið hús: Lækjasmári 2, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 05 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 31. ágúst 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Lýsing
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og flísar á gólfi.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og flísar á gólfi.
Stofa er með parket á gólfi og útgengi á svalir til suðurs sem eru yfirbyggðar að hluta.
Baðherbergi er með fallegri innréttingu, sturtu, vegghengdu salerni, handklæðaofni og flísar á gólfi og veggjum.
Hjónaherbergi er með fataskápum og dúk á gólfi.
Barnaherbergin eru tvö, bæði með fataskáp og dúk á gólfi.
Þvottahús er með vaski og flísar á gólfi.
Sérgeymsla er í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Um er að ræða vel skipulagða íbúð með sólskála yfir hluta af svölum á góðum stað í Kópavoginum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða á netfanginu [email protected].
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.