Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Vera Sigurðardóttir
Sjöfn Hilmarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Efstaleiti 13

103 Reykjavík

117.900.000 kr.

810.867 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2368803

Fasteignamat

114.300.000 kr.

Brunabótamat

99.670.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2020
svg
145,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 1. september 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Efstaleiti 13, 103 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 14. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 1. september 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Domusnova og Ingunn Björg lgf. kynna glæsilega, bjarta og vel skipulagða 3 herbergja íbúð á jarðhæð með yfirbyggðum svölum í nýlegu fjölbýlishúsi við Efstaleiti 13, einungis 6 íbúðir í stigagangi. Eigninni fylgja tvö sérmerkt bílastæði í upphituðum bílakjallara auk rúmgóðs bílskúrs.  Auk hefðbundinnar notkunar hentar rýmið vel sem tómstundaherbergi, til dæmis fyrir golfhermi, líkamsrækt eða aðra afþreyingu.

Virkilega falleg eign á afar eftirsóttum stað miðsvæðis á Höfuðborgarsvæðinu, þar sem stutt er í ýmsa afþreyingu, s.s. Kringluna, Borgarleikhúsið ,Yndisauka matsölustað með útisvæði, apótek og heilsugæslu. Fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði í eru einnig í næsta nágrenni. 


Eldhús, borðstofa og stofa eru í björtu og rúmgóðu alrými. Aukin lofthæð er í íbúðinni og gólfsíðir gluggar, í borðstofu er horngluggi sem gefur rýminu skemmtilegan karakter. Úr stofu er útgengt á yfirbyggðar svalir sem snúa til suðurs. inn af eldhúsi er rúmgott þvottahús / búr með góðri innréttingu sem nýtist vel sem framlenging af eldhúsi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Tvö rúmgóð svefnherbergi eru í eigninni auk baðherbergis með góðri innréttingu, handklæðaofni, walk inn sturtu og baðkari. Innangengt er úr sameign í 30,9 fm bílskúr með rafdrifinni hurð. Bílastæðin tvö eru staðsett fyrir framan bílskúr. Rúmgóð geymsla er staðsett á geymslugangi. 
Skv. HMS er eignin skráð 145,4 fm, þar af er bílskúr 30,9 fm og geymsla 10,6 fm. Fasteignamat næsta árs verður 115.600.000. 

Nánari upplýsingar veitir:

Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / [email protected]

Nánari lýsing eignar:

Litir og samsetningar innréttinga og flísa voru valdar af Rut Káradóttur innanhússarkitekt. Innréttingar eru hannaðar af GKS og smíðaðar af Nobilia í Þýskalandi. Góflefni íbúðar eru fallegt harðparket og flísar.
Forstofa :
Rúmgóður fjórfaldur fataskápur.
Eldhús : Fallegt og nútímalegt eldhús með vandaðri innréttingu og góðu skápaplássi, innbyggð uppþvottavél, rúmgóð eyja með span helluborði með háf yfir. 
Þvottahús / búr : Inn af eldhúsi er rúmgott þvottahús / búr með vandaðri innréttingu með efri og neðri skápum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur. Tvöfaldur Samsung ísskápur fylgir með í kaupunum.
Stofa / borðstofa: Rúmgott og bjart rými með gólfsíðum gluggum, útgegnt frá stofu út á yfirbyggðar svalir. 
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart, með góðu skápaplássi, stærð 12,2 fm.
Herbergi 2: Rúmgott og bjart með fallegum hornglugga, stærð 12, 4 fm. 
Baðherbergi: Fallegar ljósar flísar á veggjum og gólfi, rúmgóð innrétting með skúffum og skápum, speglaskápur á vegg. Handklæðaofn, walk inn sturta, og baðkar.
Bílskúr: Mjög rúmgóður bílskúr með rafdrifinni bílskúrshurð, lofthæð 270 sm. Stærð 30,9 fm. Innangengt er í bílskúr úr sameign ásamt bílakjallara, fjölbreyttir möguleikar á nýtingu.
Bílastæði:  Tvö stæði í upphituðum bílakjallara eru við hlið bílskúrs, merkt 05 B70 og 05 B71. Rafhleðslustöð. 
Geymsla: Rúmgóð geymsla á sameignar gangi með mikilli lofthæð, stærð 10,6 fm. 
Skjólsæll og fallegur sameiginlegur inngarður. 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • img
    Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
    Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
    Domusnova fasteignasala
    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone
    img

    Ingunn Björg Sigurjónsdóttir

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    Ár
    Fasteignamat
    Kaupverð
    Stærð
    Fermetraverð
    11. feb. 2022
    77.150.000 kr.
    91.000.000 kr.
    145.4 m²
    625.860 kr.
    10. mar. 2021
    61.600.000 kr.
    68.900.000 kr.
    114.5 m²
    601.747 kr.
    Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone

    Ingunn Björg Sigurjónsdóttir

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur