Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Halldóruhagi 8 íbúð 202

600 Akureyri

74.900.000 kr.

735.756 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2500567

Fasteignamat

66.250.000 kr.

Brunabótamat

66.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
101,8 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Halldóruhagi 8 íbúð 202 - Virkilega björt og falleg 3-4ra herbergja íbúð með sér inngangi á efri hæð í fjórbýli í Hagahverfi - stærð 101,8 m²
Skemmtilegt útsýni er úr íbúðinni bæði inn og út fjörðinn. 

* Sér inngangur
* Sér þvottahús
* Auka snyrting
* Vandaðar innréttingar og aukin lofthæð
* Suður svalir


Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í alrými, tvö svefnherbergi, geymslu sem hefur verið nýtt sem svefnherbergi, baðherbergi, snyrtingu og þvottahús. Sameiginleg geymsla/tæknirými er með íbúð á neðri hæðinni.

Forstofa er með gráum flísum á gólfi og stórum tvöföldum skáp. 
Eldhús, vönduð tvílit innrétting og eyja með dökkri borðplötu. Ísskápur með frysti og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar. 
Stofa og eldhús eru í alrými þar sem ljóst harðparket er á gólfum og loft eru tekin upp. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar suður svalir með dökku glerhandriði. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði með ljósu harðparketi á gólfi og fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 10,1 og 13,3 m².
Geymsla innan íbúðar hefur verið notuð sem svefnherbergi, þar er ljóst harðparket á gólfi og stór opnanlegur gluggi. Geymslan er skv. teikningum 6,4 m² að stærð. 
Baðherbergi er með gráum flísum á gólfi og tveimur veggjum, vönduð grá innrétting með dökkri borðplötu og speglaskápur, upphengt wc, handklæðaofn, walk-in sturta og opnanlegur gluggi.
Snyrting er til hliðar úr forstofunni með gráum flísum á gólfi, hvítri innréttingu með handlaug og upphengdu wc.
Þvottahús er með gráum flísum á gólfi og grárri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og vask.

Sameiginlegt tæknirými er á neðri hæðinni með lökkuðu gólfi.

Annað
* Loft eru tekin upp í öllum rýmum íbúðar.
* Gólfhiti er í allri íbúðinni og auk þess eru ofnar í forstofu og á baðherbergi. 
* Útsog er úr þvottahúsi, snyrtingu, baðherbergi og alrými.
* Allar innréttingar eru plastlagðar og frá GKS.
* Sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni með rafmagnstengli tengdum rafmagnsmæli íbúðar.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. feb. 2020
19.200.000 kr.
47.800.000 kr.
101.8 m²
469.548 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone