Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Ægisgata 1

625 Ólafsfjörður

49.900.000 kr.

282.400 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2154422

Fasteignamat

36.600.000 kr.

Brunabótamat

79.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1962
svg
176,7 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Ægisgata 1, 625 Ólafsfjörður - 5 herbergja fallegt og vel skipulagt einbýlishús ásamt bílskúr á hornlóð - Stærð 176,7 m².
Húsið er að miklu leyti í upprunalegu ástandi en hefur þó verið vel viðhaldið. 
Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, [email protected], s. 888-6661.

Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu og borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, geymslu, þvottahús og bílskúr.


Komið er inn í forstofu með opnu fatahengi. Frá forstofu tekur við rúmgott hol sem tengir saman öll helstu rými hússins á afar hagkvæman hátt. Frá holi er gengið upp hálfa hæð í svefnherbergisálmu eignarinnar og niður hálfa hæð í kjallara þar sem geymsla, þvottahús og bílskúr eru staðsett.
Eldhús er með upprunalegri, rúmgóðri og vel viðhaldinni innréttingu. Nýleg borðplata og veggflísar setja fallegan svip á rýmið. Eldavél er í innréttingu sem og uppþvottavél sem fylgir með við sölu. Inn af eldhúsi er gott og hentugt búr.
Stofa og borðstofa mynda bjart og rúmgott alrými með gluggum til þriggja átta sem tryggja góða birtu og notalegt andrúmsloft.
Í svefnherbergisálmu eru þrjú svefnherbergi, þar af tvö með fataskápum.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað á smekklegan hátt. Þar er rúmgóð walk-in sturta, nýleg ljós innrétting með skáp, flísar á gólfi og hluta veggja ásamt panilklæðningu á hluta veggja. Salerni og opnanlegur gluggi eru einnig á baðherberginu.
Í kjallara er sérinngangur. Þar er rúmgóð geymsla með opnanlegum glugga og afar rúmgott þvottahús með góðri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Einnig er þar vaskur og borðplata undir opnanlegum glugga.
Bílskúr 22,2 m², er með aðkomu frá Gunnólfsgötu, þar er endurnýjuð innkeyrsluhurð og gólf lakkað.

Á gólfum helstu rýma eignarinnar er viðarparket, en í forstofu, baðherbergi og kjallara eru flísar.
Um er að ræða vel skipulagt og traust einbýlishús þar sem fjölskylduvæn rýmisskipan, góð geymslurými og björt sameiginleg rými fara saman.
Nýtt þakjárn var sett á húsið fyrir nokkrum árum. 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone