Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Úlfar Þór Davíðsson
Ingimar Ingimarsson
Stefán Jóhann Ólafsson
Brandur Gunnarsson
Davíð Ólafsson
Gunnlaugur Þráinsson
Böðvar Sigurbjörnsson
Börkur Hrafnsson
Einar Pálsson
María Mjöll Guðmundsdóttir
Victor Levi Ricciardi Ferrua
Reynir Erlingsson
Vista
fjölbýlishús

Bygggarðar 1

170 Seltjarnarnes

119.900.000 kr.

1.030.069 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2530153

Fasteignamat

111.150.000 kr.

Brunabótamat

89.440.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2025
svg
116,4 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílastæði

Lýsing

Borg fasteignasala kynnir: glæsilega og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á jarðhæð við Bygggarða 1 á Seltjarnarnesi. Eignin er 116,4 m² að stærð og henni fylgir stæði í bílageymslu.
Íbúðin er í vönduðu fjölbýlishúsi, byggðu árið 2025, og skiptist í forstofu, rúmgott alrými með stofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og geymslu. Úr stofu er gengið út á sérafnotareit við íbúðina. 

Vandað hefur verið til efnisvals og frágangs og húsið er Svansvottað. Innréttingar eru frá Selós, steinn er á borðplötum, harðparket frá Krono er á gólfum og baðherbergi eru flísalögð. Íbúðin er með gólfhita og loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Gólfsíðir gluggar veita góða birtu inn í íbúðina.


Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur.
Stofa: Björt og rúmgóð með parketi á gólfi og útgengi á sérafnotareit við íbúðina.
Eldhús: Eldhúsið er opið inn í stofu og myndar með henni bjart og rúmgott alrými. Innréttingar eru frá Selós með steini á borðplötum og rúmgóðri eyju. Í eyjunni er spanhelluborð með innbyggðum gufugleypi. Uppþvottavél er innbyggð og gert er ráð fyrir ísskáp og frysti í innréttingu. Parket er á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgóð hjónasvíta með parketi á gólfi og stórum fataskáp með góðu skápaplássi. Vandaðar sérsniðnar myrkvunargardínur eru fyrir gluggum. Inn af herberginu er sér baðherbergi.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi III: Parket á gólfi.
Baðherbergi við hjónaherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Sérsmíðuð baðinnrétting með eikarspónlögðum vaskaskáp og steini á borði. Walk-in sturta og handklæðaofn.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með sérsmíðaðri innréttingu og eikarspónlögðum vaskaskáp. Walk-in sturta og handklæðaofn.
Þvottahús: Þvottahús er inn af baðherbergi, með flísum á gólfi og sérsmíðaðri innréttingu. Aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og þar er einnig aukaskápur fyrir handklæði og geymslu.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign, 11,7 m² að stærð.
Bílastæði: Eigninni fylgir stæði í bílageymslu. Búið er að leggja fyrir hleðslustöð í bílakjallara en eftir er að leggja að stæðinu.
Hjólageymsla: Sameiginleg hjólageymsla er í húsinu.

Um er að ræða glæsilega og vel skipulagða fjölskyldueign á góðum stað á Seltjarnarnesi, þar sem stutt er í fallegar gönguleiðir, útivist og alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir:
Díana Thanh Andradóttir, aðstoðamaður fasteignasala, í síma 868-0146 eða [email protected]
Davíð Ólafsson, lögg. fasteignasali, í síma 897-1533 eða [email protected]


Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
 

img
Davíð Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Borg Fasteignasala
Síðumúla 23, 108 Reykjavík
Borg Fasteignasala

Borg Fasteignasala

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
phone
img

Davíð Ólafsson

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. jún. 2025
100.650.000 kr.
119.900.000 kr.
10107 m²
11.863 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Borg Fasteignasala

Borg Fasteignasala

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
phone

Davíð Ólafsson

Síðumúla 23, 108 Reykjavík