Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Arnfinnsson
Vista
fjölbýlishús

Árskógar 17

700 Egilsstaðir

53.000.000 kr.

587.583 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2175455

Fasteignamat

38.750.000 kr.

Brunabótamat

42.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1980
svg
90,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.

Lýsing

Árskógar 17, Múlaþing: Falleg og talsvert endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á neðri hæð í fjölbýlishúsi á grónum stað á Egilsstöðum, ásamt stúdíóíbúð í kjallara.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // [email protected]

Eignin skiptist upp í anddyri, bjart alrými þar sem eldhús, borðkrókur og stofa eru í opnu rými, 2 svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Úr alrými er útgengt á afgirtan timburpall. Í kjallara er stúdíóíbúð sem tekin var í gegn 2025 og er nú í útleigu. Eigninni fylgir einnig 3,9 m² útigeymsla í séreign undir stiga.

- Nýtt eldhús og parket 2021
- Stúdíóíbúð í kjallara í útleigu, möguleiki á leigutekjum
- Plan malbikað 2025 með hita
- Hitaveita, hitagrind yfirfarin 2025
- Gróið hverfi

SKIPULAG EIGNAR:

Anddyri: Flísalagt með snagafatahengi á vegg, opið inn í alrými og góð birta.
Alrými/stofa/borðstofa: Bjart opið rými með ljósu harðparketi, innfelldri lýsingu í lofti. Borðkrókur við glugga milli eldhúss og stofu. Útgengt á pall.
Eldhús: Nýleg hvít innrétting frá 2021 með góðu skápaplássi, dökkri borðplötu og eyju með helluborði sem snýr að alrýminu. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja, vaskur undir glugga og gott vinnupláss.
Svefnherbergi 1: Hjónaherbergi með ljósu harðparketi, og hvítum fataskápum.
Svefnherbergi 2: Minna herbergi inn af anddyri, með ljósu harðparketi, nýtist vel sem svefnherbergi eða vinnurými.
Baðherbergi: Snyrtilegt, með baðkari með sturtuaðstöðu, hvítri innréttingu með innfelldum vaski og spegilskáp með lýsingu. Aðstaða fyrir þvottavél er inni á baðherbergi. Dökkar náttúruflísar á gólfi.
Stúdíóíbúð í kjallara: Kjallarinn var tekinn í gegn 2025 og gerð þar stúdíóíbúð með salerni og eldhúsaðstöðu. Rýmið er skráð sem 18,2 m² geymsla hjá HMS. Íbúðin er í útleigu.
Útigeymsla: Lítil útigeymsla í séreign undir stiga fylgir eigninni, 3,9 m² og skráð sem geymsla hjá HMS.
Pallur: Afgirtur timburpallur með skjólgirðingu og hliði, yfirbyggður að hluta þar sem svalir efri hæðar mynda skjól.
Garður/lóð: Gróin grasflöt við húsið, malbikað bílaplan með hita frá 2025 og innkeyrsla við hlið hússins.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband:
Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // [email protected]

Skráning eignarinnar skv. HMS:
Fasteignanúmer: F2175455
Stærð: Íbúð á hæð í fjölbýlishúsi, 90,2 m² (íbúð 68,1 m², geymsla 18,2 m² (stúdíóíbúð í kjallara), geymsla 3,9 m² (útigeymsla undir stiga), auk 5,5 m² í sameign allra)
Byggingarár: 1980
Byggingarefni: Steypt + timbur
Gildandi fasteignamat: 38.750.000 kr.
Fyrirhugað fasteignamat 2027: 42.250.000 kr.
Brunabótamat: 42.250.000 kr.
Lóð: Íbúðarhúsalóð í eigu Múlaþings, sameiginleg leigulóð, stærð lóðar er 1110,0 m²

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1
. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1,6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.

Skoðunarskylda kaupenda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði

img
Heimir Arnfinnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Austurlands
Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður

Fasteignasala Austurlands

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
phone
img

Heimir Arnfinnsson

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. feb. 2021
18.500.000 kr.
18.500.000 kr.
90.2 m²
205.100 kr.
20. feb. 2019
13.000.000 kr.
17.500.000 kr.
90.2 m²
194.013 kr.
2. nóv. 2017
11.000.000 kr.
14.800.000 kr.
90.2 m²
164.080 kr.
26. feb. 2016
9.910.000 kr.
12.500.000 kr.
90.2 m²
138.581 kr.
11. jún. 2009
11.305.000 kr.
7.000.000 kr.
90.2 m²
77.605 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Fasteignasala Austurlands

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
phone

Heimir Arnfinnsson

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður