Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1982
119,4 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 7. september 2026
kl. 17:00
til 17:30
Fasteignasali tekur á móti áhugasömum
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Falleg og mikið endurnýjuð endaíbúð á 2. hæð í litlu og snyrtilegu fjölbýlishúsi við Álftaland 7 í Fossvoginum. Eignin er skráð samtals 119,4 fm og þar af er íbúðin sjálf 100,5 fm. Í sameign fylgir eigninni 13,2 fm herbergi auk 5,7 fm sérgeymslu. Íbúðin er einstaklega björt með gluggum á þrjá vegu og fallegu útsýni, meðal annars til suðurs. Yfirbyggðar svalir eru til suðurs út frá stofu og aðrar svalir til vesturs út frá hjónaherbergi. Íbúðin hefur verið töluvert endurnýjuð, meðal annars eldhús og baðherbergi. Aðeins ein íbúð er á hverri hæð og einungis fimm íbúðir eru í húsinu. Frábær staðsetning í grónu og eftirsóttu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir og fallegar göngu- og hjólaleiðir.**Sækja söluyfirlit**
Nánari lýsing
Forstofa er með nýlegum tvöföldum fataskáp.
Eldhús hefur verið endurnýjað á fallegan og stílhreinan hátt. Innrétting er rúmgóð með góðu skápaplássi og kvartssteini á borðplötum. Ofn er í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og góður tækjaskápur. Eldhúseyja með spanhelluborði og viftu setur fallegan svip á rýmið og tengir eldhúsið vel við borðstofu og stofu.
Borðstofa og stofa mynda saman bjart og rúmgott alrými með stórum gluggum og fallegu útsýni. Úr stofu er útgengt á góðar suðursvalir með svalalokun, sem nýtast því vel stóran hluta ársins.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað á smekklegan hátt. Þar er ljós vaskinnrétting með góðu skápaplássi, sturta með glerþili og upphengt salerni. Flísar eru á gólfi og veggjum að hluta og opnanlegur gluggi er á baðherberginu.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott og bjart með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Úr herberginu er útgengt á svalir til vesturs.
Barnaherbergi er einnig rúmgott og bjart með tvöföldum fataskáp og parketi á gólfi.
Í kjallara fylgir íbúðinni 13,2 fm herbergi, skráð sem geymsla, með opnanlegum glugga og nýlegu harðparketi á gólfi. Þar er jafnframt aðgangur að sameiginlegri salernisaðstöðu.
Sérgeymsla eignarinnar er 5,7 fm og er staðsett í sameign.
Þvottahús er sameiginlegt og snyrtilegt og hefur hver íbúð tengi fyrir eigin þvottavél. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Garðurinn er sameiginlegur, gróinn og snyrtilegur.
Sameiginleg bílastæði eru fyrir framan húsið.
Helstu endurbætur og viðhald síðustu ára
2026: Austurhlið hússins var máluð.
2025: Múrviðgerðir á austurhlið og skipt um gler að hluta.
2024: Parket íbúðar pússað upp og lakkað og settir nýjir fataskápar að hluta.
2022: Eldhús endurnýjað.
2020-2021: Húsið sprunguviðgert og málað, svalir endurmúraðar og sett ný útiljós á svalir. Skipt var um þrýstijafnara á heitu vatni í sameign. Tréverk endurnýjað í þakkanti.
2018: Baðherbergi gert upp.
Nánari upplýsingar veitir Lilja Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða [email protected]
Athugið að seljandi eignast íbúðina í makaskiptum og hefur því aldrei búið í eigninni.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. sep. 2020
51.000.000 kr.
55.200.000 kr.
119.4 m²
462.312 kr.
4. maí. 2018
47.400.000 kr.
53.500.000 kr.
119.4 m²
448.074 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026