Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2001
197,2 m²
5 herb.
2 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Opið hús: 6. september 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Ólafsgeisli 6, 113 Reykjavík. Eignin verður sýnd sunnudaginn 6. september 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Nýtt á skrá! Ólafsgeisli 6 Reykjavík. Einstök staðsetning með glæsilegu útsýni!
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilega og vel staðsetta 5 herbergja neðri sérhæð með bílskúr einstökum útsýnisstað við Ólafsgeisla í Reykjavík. Eignin er alls 197,2 fermetrar að stærð og þar af 25,8 fermetra bílskúr. Húsið er umvafið fallegri náttúru þar sem útsýni er yfir m.a golfvöll GR og höfuðborgina.
Hæðin er virkilega falleg og sjarmerandi. Mikil lofthæð er í stofu og eldhúsi og stórir gólfsíðir gluggar til suðurs þar sem glæsileg náttúran mætir manni í alrými eignarinnar. Útgengi er úr stofu á hellulagða verönd til suðurs. Eignin var öll hönnuð af Rut Káradóttur innanhússarkitekt þar sem hugað var að öllum smáatriðum. Stórt eldhús með miklu skápaplássi og steini á borðum. Extra háar innihurðir og vönduð gólfefni.
Eignin skiptist í forstofu, sjónvarpsstofu (væri hægt að breyta í fjórða svefnherbergið), 2-3 svefnherbergi (eitt svefnherbergi nýtt sem fataherbergi í dag), baðherbergi (inn af hjónaherbergi), setustofu/borðstofu, eldhús, gestasnýrting, þvottaherbergi með sturtuaðstöðu, geymslu og bílskúr.
Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað við Ólafsgeisla í Reykjavík þaðan sem stutt er í skóla og leikskóla, golfvöll GR í Grafarholti auk verslunar og þjónustu. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í glæsilegri náttúrunni allt í kring.
Nánari lýsing:
Forstofa: Með flísum á gólfi og skápum.
Gestasnyrting: Með flísum á gólfi og hluta veggja, upphengt salerni, vaskur og gluggi austurs.
Sjónvarpsstofa (möguleiki á fjórða svefnherbergi): Með gegnheilu parketi á gólfi og glugga austurs.
Stofa: Er rúmgóð með gegnheilu parketi á gólfi og aukinni lofthæð. Gluggar til austurs og glæsilegir gólfsíðir gluggar til suðurs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útsýni frá stofu er afar glæsilegt út í fallega náttúruna, yfir golfvöll GR og víðar. Útgengi á sérafnotaflöt eignar frá stofu.
Sérafnotaflötur: Er hellulagður og snýr til suðurs. Glæsileg náttúran allt í kring með stórkostlegu útsýni.
Eldhús: Með flísum á gólfi og sérsmíðuðum eldhúsinnréttingum með miklu skápaplássi. Stór eldhúseyja, granít á borðum og undirfelldur vaskur. Tvöfaldur kæliskápur með frysti, bakaraofn, innbyggð uppþvottavél og gashelluborð. Gluggar til suðurs/vesturs og aukin lofthæð.
Hjónaherbergi: Með gegnheilu parketi á gólfi, góðum skápum og glugga til austurs. Gengið er inn í baðherbergi frá hjónaherbergi.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta og baðkar með sturtu tækjum. Innrétting við vask með steini á borðum og speglaskáp fyrir ofan. Upphengt salerni og gluggi til austurs.
Svefnherbergi II (fataherbergi): Er í dag nýtt sem fataherbergi. Gegnheilt parket á gólfi og gluggi til vesturs.
Svefnherbergi III: Er stórt, með gegnheilu parketi á gólfi og skápum. Gluggi til vesturs. Inn af herbergi er geymsla sem einnig væri hægt að nýta sem fataherbergi.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, skápum, tenglum fyrir þvottavél/þurrkara og vaski. Flísalögð sturta er inn af þvottaherbergi og gluggi til vesturs.
Bílskúr: Er 25,8 fermetrar að stærð og mjög snyrtilegur. Innangengt beint í bílskúr um tröppur frá hæðinni. Flísar á gólfi og rafmagns bílskúrshurðaopnari. Upphitaður með glugga til vesturs.
Nánari upplýsingar:
Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali / [email protected] / 849-0672

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. jún. 2013
41.200.000 kr.
60.000.000 kr.
197.2 m²
304.260 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026