Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1935
74,1 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 7. september 2026
kl. 17:00
til 17:30
Lýsing
Kjöreign fasteignasala kynnir virkilega fallega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja 70,4 fermetra íbúð á annarri hæð á Hofsvallagötu 18 í gamla Vesturbænum í Reykjavík. Íbúðin skiptist í : forstofu, eldhús, baðherbergi, stofu og tvö svefnherbergi ásamt aukaherbergi og geymslu í sameign.
Rýmið nýtist einstaklega vel í þessari íbúð sem er vel skipulögð, björt og notaleg. Nýlegt hvítt eikarparket er á allri íbúðinni og nýjar flísar á eldhúsi og baði. Virkilega falleg eign í þessu vinsæla og fallega húsi með skóla, verslun og helstu þjónustu í göngufæri.
Nánari lýsing:
Komið er inn í parketlagt forstofuhol með fatahengi.
Eldhúsið er á vinstri hönd og hefur verið endurnýjað á smekklegan hátt árin 2014 og 2025. Eldhúsið var nýlega stækkað, settur gólfhiti, rafmagn endurnýjað að hluta og hiti settur í gólf. Rúmgóð innrétting, innbyggður ísskápur og uppþvottvél, nýleg tæki og glænýjar flísar á gólfum og veggjum. Gluggi snýr í vestur að gróðursælum garði.
Stofan er björt og rúmgóð með ljósu eikarparketi og endurnýjuðum gluggum með hljóðeinangrandi gleri.
Hjónaherbergi er með parketi á gólfi, góðu skápaplássi og fallegu útsýni. Tengi fyrir þvottavél er haganlega komið fyrir inni í skáp.
Barnaherbergið er með parketi á gólfi og endurnýjuðum gluggum með hljóðeinangrandi gleri.
Baðherbergið er einnig endurnýjað frá grunni, baðkar með sturtu og flísar á veggjum og gólfi. Stór gluggi er á baðherberginu með opnanlegu fagi.
Í sameign er aukaherbergi með parketi á gólfi sem nýtt er sem vinnuherbergi. Eigninni fylgir einnig rúmgóð geymsla.
Sameiginlegt gott þvottahús, hver með sýna þvottavél og stórt þurrkherbergi í kjallara.
Gengið er út sér bakgarð frá sameign er þar er einnig stór, sameiginlegur garður með leiktækjum, grillsvæði og matjurtakössum fyrir íbúa.
Virkilega falleg og mikið endurnýjuð íbúð á þessum vinsæla stað í 101 Reykjavík.
Ytra byrði hússins hefur verið vel viðhaldið. Í húsinu starfar öflugt og vel skipulagt húsfélag sem sinnir umsýslu og almennu viðhaldi af fagmennsku og festu.
Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða [email protected].
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 [email protected]
Dan Wiium hdl., og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 [email protected]

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. maí. 2007
13.765.000 kr.
18.300.000 kr.
74.1 m²
246.964 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026