Upplýsingar
Byggt 1957
121,3 m²
4 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Bílskúr
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 9. september 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Kvisthagi 15, 107 Reykjavík. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 9. september 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Kvisthagi 15, 121.3 fm 4 herb. íbúð á 2 hæð með bílskúr. Tvö svefnherbergi, tvær samliggjandi stofur, hægt að hafa svefnherbergin þrjú. Endurnýjað baðherbergi og endurnýjuð innrétting í eldhúsi fyrir þó nokkrum árum. Endurnýjað þak og skólp og dren að sögn. Mjög gott útsýni m.a næst smá sjávarsýn. Íbúðin þarfnast endurbóta að nokkru leiti og kominn tími á málun húss að utan.Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 202-7812, nánar tiltekið eign merkt 02-01. Ibúðin er skráð 90,5 fm og sérgeymsla í sameign merkt 00-02 er skráð 6,9 fm. Eigninni fylgir bílskúr merktur 02-01-01 stærð bílskúrs er 23,9 fm , birt heildarstærð 121.3 fm. Svalir eru til suðurs út frá svefnherbergi.
Eignin skiptist í:Hol, 2 svefnherbergi, 2 stofur, eldhús og baðherbergi.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Nánari lýsing eignarinnar:
INNGANGUR: Sameiginlegur inngangur með tveimur íbúðum.
HOL: Hol með dúk og skápum.
ELDHÚS: Eldhús með endurnýjaðri (fyrir nokkrum árum) Ikea innréttingu og borðkrók.
BAÐHERBERGI: Baðherbergið er endurnýjað, flísalagt, vegghengt salerni, innrétting og "walk in" sturta með glerskilrúmi. Gluggi er á baðherbergi.
SVEFNHERBERGI I: Rúmgott dúklagt herbergi með skápum, gengið út á svalir í suður með ágætu útsýni.
SVEFNHERBERGI II: Herbergi með dúk.
STOFA I: Rúmgóð dúklögð stofa með útbyggðum glugga til suðurs með góðu útsýni.
STOFA II: Rúmgóð stofa með dúk, rennihurð milli stofanna.
SÉRGEYMSLA OG SAMEIGN: Sérgeymsla í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi þar sem hver er með sína vél. Innaf er kyndiklefi.
BÍLSKÚR: staðsetttur við hlið hússins , tveir bílskúrar saman , opið að hluta á milli. Bílskúrinn þarfnast talsverðra lagfæringa.
Húsið þarfnast málunar að utan. FRÁBÆR STAÐSETNING Í GRÓNU HVERFI.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn M. Friðgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 899-1882, tölvupóstur [email protected] eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook