Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
einbýlishús

Skildinganes 45

102 Reykjavík

225.000.000 kr.

900.000 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2029580

Fasteignamat

169.650.000 kr.

Brunabótamat

106.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1975
svg
250 m²
svg
9 herb.
svg
3 baðherb.
svg
6 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Margir inngangar
Opið hús: 29. september 2026 kl. 12:00 til 12:30

Lýsing

Miklaborg kynnir: Miklaborg kynnir: Fallegt og fjölskylduvænt 250 fm einbýlishús á 647 fm eignarlóð í eftirsóttu íbúðahverfi í nálægð við sjávarsíðuna í Skerjafirði. Sex svefnherbergi, þrjú baðherbergi, aukaíbúð með sérinngangi.

Húsið sem er rúmgott og vel skipulagt stendur við rólega götu, við einstakt útivistarsvæði við sjávarsíðuna, Nauthólsvík, Öskjuhlíð og hentar þannig fólki sem kýs að búa nálægt náttúru en vera á sama tíma stutt frá miðborginni.

Eignin er rúmgóð og býður aukaíbúðin upp á skemmtilega möguleika fyrir fjölskyldu en getur einnig hentað til útleigu.

Húsið er teiknað af arkitektastofunni ARKO 1973. Húsið er skráð 220 fermetrar með bílskúr. Til viðbótar er 30 fermetra innréttað en óskráð rými sem er hluti af aukaíbúðinni. Heildareignin er því 250 fermetrar. Lóðin er 647 fermetra eignarlóð. Húsið og lóðin hefur fengið töluverða endurnýjun og er viðhald gott.. Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur, lögg. fast. [email protected] s.6941401


Jarðhæð: Gengið er inn í anddyri á jarðhæð. Á vinstri hönd er gestasnyrting sem var endurnýjuð 2019. Úr anddyri er bæði gengið niður í íbúð í kjallara og inn í bjart og opið stofurými og eldhús á jarðhæð. Anddyri var endurnýjað 2021. Eldhús var endurnýjað 2019.

Svefnherbergishæð: Gengið er upp á svefnherbergishæð úr stofurými. Þar eru fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Hjónaherbergi er rúmgott, með svölum og tröppum niður í lokaðan hellulagðan garð. Baðherbergi var endurnýjað 2023.

Þriggja herbergja íbúð í kjallara: Íbúðin var öll endurnýjuð 2021. Sérinngangur. Eldhús, tvö svefnherbergi, stofa og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél.

Bílskúr: Góður bílskúr með heitu og köldu vatni. Gólf úr epoxífloti.

Lóð: Lóðin er að mestu hellulögð en grasflöt í bakgarði. Lokaður, skjólgóður hellulagður garður. Hiti er í stéttum við framanvert hús.

Endurbætur:

2021: Kjallari endurnýjaður með nýju baðherbergi og gólfefnum. Kaldavatnslagnir sandblásnar og akrílhúðaðar. Sísalteppi lögð á tröppur milli hæða. Felligardínur og myrkvunargardínur frá Skermi fyrir aðalhæð og efri hæð. Anddyri endurnýjað. Skipt um gler í öllum stofugluggum á aðalhæð og allar svalahurðir endurnýjaðar.

2022: Múrviðgerðir og málun á húsi. Útveggur baðherbergis og stofu í kjallara tjargaður, skipt um jarðveg og sett drenmöl. Skipt um jarðveg og nýjar grasþökur lagðar í bakgarði. Skipt um jarðveg og hellur lagðar í vestanverðum garði.

2023: Baðherbergi á efri hæð endurnýjað og lagður gólfhiti.

Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur, lögg. fast. [email protected] s.6941401


img
Viðar Böðvarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Miklaborg fasteignasala
Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
img

Viðar Böðvarsson

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. apr. 2021
102.800.000 kr.
143.000.000 kr.
196 m²
729.592 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík

Viðar Böðvarsson

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík