Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Bólstaðarhlíð 56

105 Reykjavík

76.900.000 kr.

737.296 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2013333

Fasteignamat

73.700.000 kr.

Brunabótamat

52.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1965
svg
104,3 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 7. september 2026 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús: Bólstaðarhlíð 56, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 05. Eignin verður sýnd mánudaginn 7. september 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Lýsing

Heimili fasteignasala og Brynjólfur Snorrason, lgfs., kynna til sölu fjögurra herbergja íbúð á annari hæð að Bólstaðarhlíð 56 í Reykjavík.  Eignin er skráð 104,3 m2. að stærð, þar af íbúðarrými 98,7m2 og geymsla 5,6 m2,  og skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara auk sérgeymslu í sameign. Íbúðin er töluvert uppgerð og nýlega var húsið múrviðgert og málað auk þess sem flestir gluggar voru endurnýjaðir.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]


Nánari lýsing:
Forstofa: Komið inn í forstofu frá teppalagðri sameign. Á gólfi eru flísar.
Eldhús: Nýleg hvít innrétting, gott skápapláss, ljósar borðplötur með marmaraáferð, innfelldur ísskápur og uppþvottavél og eyja með skúffum og innbyggðum frysti. Á gólfi eru flísar og frá eldhúsi er útgengt á skjólgóðar vestur svalir.
Borð- og setustofa: Í opnu rými með eldhúsi. Bjart rými með gluggum til vesturs og parketi á gólfi. 
Herbergi 1: Inn af forstofu, hvítur fataskápur. Parket á gólfi.
Herbergi 3: Snýr til austurs. Parket á gólfi. Aukin hljóðeinangrun í gluggum.
Hjónaherbergi: Rúmgott með stórum hvítum fataskáp. Parket á gólfi. Aukin hljóðeinangrun í gluggum.
Baðherbergi: Vegghengt salerni, handlaug, sturta, hvítur handklæðaofn, spegilskárpur og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. 
Í kjallara húseignar er sérgeymsla íbúðar og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Fallegur garður með háum sígrænum trjám við Kringlumýrarbrautina. Bílastæði á malbikuðu plani. Aftan við hús er garðurinn gróinn. Nýleg viðarverönd, leiktæki og bílaplan með plastgrindum.

Árið 2020 var nýr myndavéladyrasími settur upp og rafmagn í sameign er nýlegt. Gert var við ytra byrði húss 2018/2019 (múrviðgert og málað, þakrennur endurnýjaðar, þak lagfært og málað, flestir gluggar endurnýjaðir og einangrun í gluggum til austurs aukin).

Stutt er í leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og skóla á háskólastigi. Einnig stutt í verslanir og þjónustu í nágrenninu t.d Kringluna. 

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Brynjólfur Snorrason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. apr. 2025
66.550.000 kr.
70.500.000 kr.
10205 m²
6.908 kr.
12. maí. 2017
32.300.000 kr.
36.000.000 kr.
104.3 m²
345.158 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík