Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Hilmar Arnarson
Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1973
151,6 m²
6 herb.
1 baðherb.
5 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 8. september 2026
kl. 17:30
til 18:00
Opið hús: Hjallabraut 35, 220 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 303. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 8. september 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Glæsileg og mikið endurnýjuð 6. herbergja 151,6 fm íbúð í nýuppgerðu fjölbýli við Hjallabraut 35. Íbúðin er á 3. hæð með stórkostlegu útsýni og tvennum svölum. Björt og vel skipulögð eign á þessum vinsæla stað í Norðurbænum. Stutt er í alla helstu þjónustu eins og leikskóla og grunnskóla ásamt íþróttasvæði FH.
SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D HÉR (EKKI ÞÖRF Á SÉR FORRITI)
Eignin skiptist í: forstofu/hol, fjögur svefnherbergi (með möguleika á fimm), sjónvarpshol, stofa, eldhús, borðstofa, þvottahús, baðherbergi og geymsla.
Nánari lýsing eignarinnar:
Gengið er inn í forstofu með fataskápum
Frá forstofu er gengið inn í rúmgott hol sem tengir saman vistverur íbúðarinnar
Herbergi I er innangengt frá holi. Rúmgott og með útsýni til suðurs.
Eldhús og borðstofa í opnu rými opið við stofu. Eldhúsið var endurnýjað ásamt öllum eldhústækjum árið 2021. Snyrtileg innrétting með eyju. Bakaraofn í vinnuhæð. Spanhelluborð. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Frá borðstofu er útgengt á mjög rúmgóðar suðursvalir. Frábært útsýni.
Stofan er opin og rúmgóð. Gluggar í hvorum enda rýmisins sem gerir það bjart og hlýlegt.
Frá holi er sjónvarpshol sem auðvelt væri að breyta í 5. svefnherbergið.
Rúmgott þvottahús. Flísar á gólfi. Snyrtileg svört innrétting sem var endurnýjuð 2025.
Svefnálma með þremur svefnherbergjum og baðherbergi.
Herbergi II er rúmgott með nýlegum fataskápum.
Herbergi III er án fataskápa.
Herbergi IV (hjón) er mjög rúmgott með nýlegum fataskápum með miklu geymsluplássi. Útgengt á vestursvalir.
Baðherbergi er flísað í hólf og gólf og endurnýjað 2021. Snyrtileg innrétting undir handlaug. Speglaskápur. Upphengt salerni. Baðkar.
Öll gólfefni voru endurnýjuð 2021 fyrir utan parket í svefnherbergjum innan svefnálmu. Parket er á gólfum fyrir utan votrými og forstofu en þar eru flísar.
Sameign er snyrtileg og rúmgóð. Teppi er á stigagangi og flísar á jarðhæð. Hjóla- og vagnageymsla, stórar sameiginlegar geymslur og sérgeymslur eru staðsettar í kjallara með útgengi á baklóð. Sérgeymsla íbúðar er 7,3 fm.
Framkvæmdir innanhúss.
- Teppalagt 3 svefnherbergi og gólflistar endurnýjaðir í allri íbúðinni
- Þvottahús - flísalagt og nýjar innréttingar 2025
- Eldhús og öll eldhústæki endurnýjuð 2021-2022
- Baðherbergi endurnýjað 2021
- Gólfefni á öllu alrými og í forstofuherbergi endurnýjað 2021
- Allir fataskápar endurnýjaðir 2022-2024
- Stofurými stækkað og eldhús fært inn í alrými.
Framkvæmdir fyrir heildarfasteignina Hjallabraut 35-43 árin 2022-2023
- Múrviðgerðir
- Stóru svalirnar til suðurs, brotnar niður að fullu og steyptar aftur
- Litlu svalirnar til vesturs, helmingur þeirra brotnar niður og endursteyptar
- Húsið heilmálað
- Gaflar sem snúa til austurs og mestallur vesturendinn á húsinu álklæddur.
- Allir gluggar yfirfarnir og skipt um þá sem þörf var á.
- Þak yfirfarið (var endurnýjað 2013)
- Sameiginlegar hleðslustöðvar settar upp 2024.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / [email protected]
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. apr. 2025
77.650.000 kr.
97.000.000 kr.
10303 m²
9.415 kr.
23. jún. 2021
48.400.000 kr.
61.900.000 kr.
144.3 m²
428.967 kr.
9. des. 2015
28.650.000 kr.
36.600.000 kr.
144.3 m²
253.638 kr.
22. júl. 2010
24.550.000 kr.
27.900.000 kr.
144.3 m²
193.347 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026