Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2014
124 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Glæsileg 4ra herbergja 124 fm íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi við Stakkholt 2b. Húsið var byggt árið 2014. Íbúðin skiptist m.a. í samliggjandi stofu og eldhús, þrjú herbergi, baðherbergi, þvottahús og forstofu. Stórar svalir með svalalokun til suðvesturs. Sér geymsla fylgir í kjallara. Íbúðinni tilheyrir stæði í bílageymslu.Seljendur skoða skipti á stærri eign í sama hverfi eða í næsta nágrenni.
Nánari uppl. veitir: Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861 8511, [email protected]
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í parketlagða forstofu með skápum.
Stofa og eldhús: Stofan og eldhúsið mynda eina heild. Mjög rúmgott og bjart rými með stórum gluggum. Falleg ljós innrétting er í eldhúsi. Eyja með helluborði og barborði. Gengið er út á rúmgóðar svalir til suðvesturs úr stofu. Svalalokun er á svölum.
Hjónaherbergi: Rúmgott parketlagt hjónaherbergi með skápum.
Barnaherbergi I: Parketlagt herbergi með skápum.
Barnaherbergi II: Parketlagt herbergi með skápum.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi. Falleg ljós innrétting við vask. Walk-in sturta er á baðherbergi. Handklæðaofn.
Þvottahús: Flísalagt þvottahús. Góð innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sér geymsla er í kjallara.
Glæsileg íbúð á eftirsóttum stað í göngufjarlægð frá miðbænum, Klambratúni og Kjarvalsstöðum. Stutt er í verslanir og alla helstu þjónustu.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. mar. 2015
43.150.000 kr.
51.900.000 kr.
124 m²
418.548 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026