Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Grenilundur 4 - 202

600 Akureyri

70.900.000 kr.

685.024 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2273465

Fasteignamat

62.450.000 kr.

Brunabótamat

51.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2004
svg
103,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Grenilundur 4 íbúð 202 - Vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýli á vinsælum stað í Lundahverfi - Stærð 103,5 m²

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. 

Forstofa er flísalögð með dökkum flísum og spónlögðum eikar fataskáp.
Eldhús er með parketi á gólfi og spónlagðri eikar innréttingu með ljósum flísum á milli skápa. Uppþvottavél er innbyggð í innréttingu og fylgir með við sölu eignar.
Stofa er í opnu rúmgóðu og björtu rými með eldhúsinu og þar er parket á gólfum. Úr stofu er gengið út á steyptar suður svalir sem eru skv. teikningu 12,0 m² að stærð.  Loft eru tekin upp í alrými.
Svefnherbergi eru þrjú í eigninni, öll með parketi á gólfi og tvö með hvítum sprautulökkuðum fataskápum. Hjónaherbergi er skv. teikingu 12,8 m² að stærð og hin tvö herbergin eru 9,0 m² og 8,5 m².
Baðherbergi er flísalagt. Ljós innrétting, walk-in sturta, salerni og handklæðaofn. Opnanlegur gluggi.
Þvottahús er með flísum á gólfum, ljósri innréttingu með plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur í borðplötu.
Geymsla er innaf forstofu með hillum og opnanlegum glugga.  Sameiginlegar geymslur eru á jarðhæð.

Annað:
- Vel skipulögð og rúmgóð eign. 
- Gott útsýni er úr íbúðinni.
- Stutt í leik- og grunnskóla sem og framhaldsskólana.
- Göngufæri við Bónus og golfvöllinn.
- Búið er að setja upp rafhleðslustöð.
- Ljósleiðari kominn inn og tengdur.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Til upplýsinga fyrir væntanlega kaupendur er starfsmaður á Fasteignasölunni Hvammi tengdur seljanda í beinan legg og ber fasteignasölunnu að upplýsa um það, sbr. 2. mgr. 14. gr. laga um sölu fassteigna og skipa.




 

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone