Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Hjallalundur 9 íbúð 402

600 Akureyri

52.500.000 kr.

638.686 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2147452

Fasteignamat

46.150.000 kr.

Brunabótamat

45.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1979
svg
82,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Hjallalundur 9 íbúð 402 - 4ra herbergja íbúð á 4.hæð / efstu í fjölbýlishúsi á Brekkunni - stærð 82,2 m²


Eignin skiptist í forstofu/gang, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu á jarðhæðinni. 

Forstofa og gangur eru með dúk á gólfi, þreföldum skáp og opnu hengi. 
Eldhús, tvílit innrétting með flísum á milli skápa og dúkur á gólfi. Stæði er í innréttingu fyrir ísskáp og uppþvottavél. 
Stofa er ágætlega rúmgóð og með dúk á gólfi. Úr stofu er gengið út á steyptar vestur svalir. 
Svefnherbergin eru þrjú, öll með dúk á gólfi og fataskápum. 
Baðherbergi er með dúk á gólfi og flísum á hluta veggja. Hvítir skápar, handlaug, baðkar með sturtutækjum og tengi fyrir þvottavél. 

Á jarðhæðinni er sér geymsla með lökkuðu gólfi og hillum. 

Annað
- Búið er að endurnýja glugga í hjónaherbergi og stofu og svalahurð.
- Eikar innihurðar. 
- Snyrtileg sameign. Skipta var um gólfefni á árunum 2023-2025.
- Húsið var málað að utan árið 2019
- Stutt í leik- og grunnskóla og íþróttarsvæði KA.
- Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone