Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1908
svg
203,9 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Sérlega fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús og bílskúr með suður garði á eignarlóð í Þingholtunum.  Húsið er uppgert þriggja hæða timburhús í miðborg Reykjavíkur.  Bílskúr byggður 2005 og er sérbílastæði við hlið hússins. Fallegur suður garður með geymslurými. Einstaklega sjarmerandi eign og vel viðhaldið.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 203,9 fm. og þar af er bílskúr 23 fm. 

Nánari lýsing eignar:

Komið er inn á miðhæðina, nýlegur steyptur stigi með snjóbræðslu.
Forstofa rúmgóð og björt, fatahengi og flísar á gólfi. Viðarstigi liggur upp í ris við forstofu.
Gestasalerni með upphengdu salerni, hornvask og flísum á gólfi. 
Stofa/borðstofa opin og björt með parketi á gólfi. Úr stofunni er hringstigi niður í kjallara hússins. 
Eldhús er opið við stofuna. Í eldhúsinu er falleg innrétting með innbyggðri uppþvottavél,  helluborð, gufugleypir, ofn í vinnuhæð, gott borðpláss og flísar á hluti veggja. Parket á gólfi.

Kjallari, hringstigi liggur úr stofunni niður í kjallara og einnig er innangengt inn í að utan.
Forstofa með flísum á gólfi. Hringstigi liggur úr stofunni niður í kjallara. 
Hol sem tengir alla vistaverur saman, parket á gólfi. 
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi. 
Herbergi með parketi á gólfi. 
Baðherbergi mjög rúmgott með innangengri sturtu, gluggi, gott skpapláss, upphengt salerni, handklæðaofn og flísar á gólfi. 
Þvottahús með vask, glugga og flísum á gólfi. 
Geymsla er á hæðinni sem hefur veirð nýtt sem skrifstofurými með parketi á gólfi. 

Risið 
Viðarstigi er upp í risið.  
Risið er að mestu opið rými með lökkuðu furugólfi. Inn af risi er geymsla/fatarými með glugga. Í dag er risið nýtt sem stórt svefnherbergi. 

Bílskúr er frístandandi og var byggður árið 2005. Rafmagnshurðaopnari, heitt og kalt vatn, rafmagn og gluggi.
Lóðin er í mjög góðri rækt með góðum geymsluskúr sem nýtist vel. 

Húsið var endurnýjað að mestu að utan á árunum 2005 til 2012 m.a. endurnýjaðar lagnir út í götu og skipt um dren, raflagnir endurnýjaðar og skipt um rafmagnstöflu. Þá var bílaplan hellulagt og í það lagt snjóbræðsla. Ofna- og neysluvatnslagnir endurnýjaðar og nýtt járn á útveggi og einangrað að nýju. Baðherbergi var endurnýjað 2014 og eldhús ásamt gólfefnum á hæð 2018.

Stigi við aðalinngang  hússins var endurnýjaður 2020 og sett í hann snjóbræðsla.
Þak yfirfarið 2024 og málað. Húsið allt málað 2024.

Húsið er klassískt timburhús eins og þau voru byggð í upphafi 20. aldar, það er byggt á hlöðnum grágrýtiskjallara eins og þá tíðkaðist. Lóðin er aflokuð og skjólgóð með hellulögn og timburpöllum.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. nóv. 2012
40.750.000 kr.
52.000.000 kr.
203.9 m²
255.027 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík