Lýsing
Miklaborg kynnir: Einstaklega falleg og björt 2ja- 3ja herbergja íbúð við Skólavörðustíg 6B í hjarta miðbæjarins. Íbúðin er 73,5 fm á 2.hæð ( íbúð 203), og skiptist í forstofu, þvottahús, baðherbergi, svefnherbergi, eldhús, stofu og borðstofu ( möguleiki að bæta við öðru svefnherbergi). Útgengi er úr stofunni og svefnherberginu á rúmgóðar suð-vestur 16fm svalir. Húsið er mikið endurnýjað og framkvæmdum ný lokið. Eftirsótt saðsetning í miðbænum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Bílastæðahús er hjá húsinu ásamt stæðum fyrir framan hús gegn gjaldi samkvæmt verðskrá Reykjavíkurborgar.
Bókið einkaskoðun hjá Írisi Örnu, löggiltum fasteignasala í síma 7700500 eða [email protected]
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í forstofu með flísum á gólfum og fataskápum.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með fataskápum og útgengi út á 16,3 fm suð-vestur svalir. Harðparket á gólfum.
Þvottahús- Sérþvottahús sem gengið er inn í gegnum forstofuna með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfum.( Sameiginlegt þvottahús er einnig í kjallara hússins).
Baðherbergi:- Nýlega uppgert, flísar á gólfum og veggjum. Sturtuklefi.
Eldhús: Viðar innréttingar, eldhúseyja, ísskápur, uppþvottavél og háfur. Harðparket á gólfum.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með útgengi út á 16,3 fm suð-vestur svalir. Harðparket á gólfum.
Borðstofa: Rúmgóð borðstofa sem væri hægt að bæta við öðru svefnherbergi. Harðparket á gólfum.
Geymsla; Sérgeymsla í kjallara (2,5 fm) ásamt þvottahúsi og hjóla-vagnageymslu.
Nýverið lauk umfangsmiklum framkvæmdum upp á 65.462.679 kr - á grundvelli ástandskýrslu sem Verksýn vann fyrir húsfélagið, Múr og Ráðgjöf ehf annaðist framkvæmdir og fór Verksýn með eftirlit.
Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 7700500 eða [email protected]