Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Arnfinnsson
Vista
raðhús

Austurtún 15

700 Egilsstaðir

64.900.000 kr.

676.042 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2534398

Fasteignamat

58.400.000 kr.

Brunabótamat

59.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2025
svg
96 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

Austurtún 15 (15c), Egilsstöðum: Glæsileg og fullbúin 3ja herbergja íbúð á einni hæð í fjögurra íbúða raðhúsi í Votahvammshverfi, nýju og fjölskylduvænu íbúðahverfi. Nýbygging frá 2025 með sérinngangi og sérnotafleti til suðurs.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // [email protected]

Eignin skiptist upp í forstofu, sér geymslu með inngangi að utan, þvottahús, baðherbergi, 2 svefnherbergi og bjart alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús eru í einu opnu rými. Úr stofu er útgengt á steypta verönd til suðurs með skjólveggjum. Gólfhiti er í eigninni, kynt með hitaveitu, og innfelld lýsing í loftum setur fallegan svip á öll rými.

- Nýbygging frá 2025
- Gólfhiti og hitaveita
- Sérinngangur og tvö merkt bílastæði norðan við húsið
- Steypt verönd til suðurs sem snýr að opnu, grónu svæði

SKIPULAG EIGNAR:

Forstofa: Björt, flísalögð, með ljósri innréttingu með fataskápum, skóskáp og bekk með skógeymslu undir. Veggur klæddur ljósum viðarpanel setur nútímalegan svip á rýmið.
Geymsla: Sér geymsla, með inngangi að utan við hlið aðalinngangs. Þar eru inntak hitalagna, hita- og rafmagnsmælar og rafmagnstafla.
Þvottahús: Flísalagt, með innréttingu með vaski og skápum, tengingu fyrir þvottavél og loftræstingu.
Stofa/borðstofa/eldhús: Bjart og opið alrými, með ljósu parketi á gólfi og innfelldri lýsingu í lofti. Gólfsíðir gluggar og hurð út á verönd til suðurs hleypa inn mikilli birtu. Eldhús með stílhreinni, ljósri viðarinnréttingu upp í loft, eyju sem opnast að borðkrók, innbyggðum ofni, helluborði og lýsingu undir efri skápum.
Hjónaherbergi: Rúmgott, parketlagt með fataskápum eftir endilöngum vegg.
Svefnherbergi 2: Snyrtilegt herbergi við forstofu, parketlagt með glugga til norðurs.
Baðherbergi: Fallegt og flísalagt í hólf og gólf, með rúmgóðri sturtu með glervegg, upphengdu salerni, innréttingu með handlaug, spegilskáp með lýsingu og handklæðaofni.
Verönd: Steypt verönd til suðursrs með skjólveggjum milli íbúða.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband:
Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // [email protected]

Skráning eignarinnar skv. HMS:
Fasteignanúmer: F2534398
Stærð: Raðhús, íbúð á einni hæð, 96 m²
Byggingarár: 2025
Byggingarefni: Forsteyptar einingar
Gildandi fasteignamat: 58.400.000 kr.
Brunabótamat: 59.250.000 kr.
Lóð: Sameiginleg leigulóð fjögurra íbúða í eigu Múlaþings, stærð lóðar er 1.190,0 m².

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1
. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.

Skoðunarskylda kaupenda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði

img
Heimir Arnfinnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Austurlands
Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
Fasteignasala Austurlands

Fasteignasala Austurlands

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
phone
img

Heimir Arnfinnsson

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. maí. 2025
33.200.000 kr.
40.320.000 kr.
10103 m²
3.991 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Austurlands

Fasteignasala Austurlands

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
phone

Heimir Arnfinnsson

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður