Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
raðhús

Giljaland 21

108 Reykjavík

197.000.000 kr.

805.726 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2037185

Fasteignamat

175.100.000 kr.

Brunabótamat

114.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1969
svg
244,5 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 15. september 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Giljaland 21, 108 Reykjavík. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 15. september 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Giljaland 21, töluvert endurnýjað 247,3 fm raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Húsið er vel staðsett neðan götu hús með innbyggðum bílskúr. Stutt er í skemmtilegar gönguleiðir í Fossvogsdalnum m.a. bakarí, veitingarstaði, skóla og leikskóla. Hönnuður þessarar húsalengju er Geirharður Þorsteinsson arkitekt sem bjó einmitt í þessu húsi.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Húsið hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum m.a.
2006 - Eldhús.
2006 - Baðherbergi
2006 - Gólfefni að mestu
2003 - Skólplagnir endurnýjaðar og fl.
 
Nánari lýsing eignarinnar:
Efri og neðri hæð eru á tveimur pöllum. Fallegur garður, hellulagður að hluta með timburverönd.
Nánari lýsing:  Gengið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp. Flísalögð gestasnyrting er inn af forstofu. Frá forstofu er gengið inn í opið alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu. Mikil lofthæð. Borðstofa er rúmgóð með loftgluggum og við hlið hennar er endurnýjað eldhús með borðkrók. Á efri palli er björt stofa með fallegu útsýni og stórum gluggum, innaf stofu er opin skrifstofa/bókaherbergi og þaðan er útgengt út á svalir. Parket er á gólfum nema forstofu og gestasnyrtingu, þar eru flísar.
Neðri hæð:  Parketlagður stigi liggur niður á neðri hæð, þar eru fjögur svefnherbergi. Fataherbergi er innaf hjónaherbergi. Parket er á gólfum. Þvottahús er með glugga og innréttingu og við hlið þess er endurnýjað flísalagt baðherbergi með góðri sturtu, innréttingu og hornbaðkari. Undir bílskúr er geymsla.
Bílskúr: Innbyggður með rafmagni, hita og innangengt er í bílskúr úr anddyri.

Nánari upplýsingar veitir Kjartan Hallgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 824-9093, tölvupóstur [email protected] eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

img
Kjartan Hallgeirsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Eignamiðlun
Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
img

Kjartan Hallgeirsson

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík

Kjartan Hallgeirsson

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík