Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1951
94,8 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
4ra herbergja íbúð á jarðhæð/kjallara í þríbýli við Þórunnarstræti 128 - samtals 94,8 m² að stærð.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í alrými, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, sérgeymslu í sameign og sameiginlegt þvottahús.
Aðkoma að íbúðinni er um sameiginlegan inngang á norðurhlið hússins.
Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi.
Eldhús og stofa eru í einu opnu rúmgóðu alrými og þar er harðparket á gólfum. Eldhúsið er með snyrtilegri ljósri innréttingu.
Svefnherbergin eru nú þrjú og eru öll með harðparketi á gólfi og í tveimur þeirra eru fataskápar. Eitt herbergjanna var áður eldhús og sjá má ummerki um lagnir frá þeim tíma.
Baðherbergi er flísum á gólfi og í sturtuhorni, hvít innrétting, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Sér geymsla er innaf sameign, rétt fyrir utan inngang í íbúðina.
Þvottahús er sameiginlegt með miðhæðinni.
Annað
- Húsið var málað að utan árið 2021
- Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð á síðasta áratug, s.s. innréttingar, gólfefni, ofnar og ofnalagnir.
- Búið er að endurnýja tengla og draga nýjar raflagnir í að hluta. Gömul rafmagnstafla.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Sér hitaveita og sér rafmagn.
- Göngufæri við miðbæinn, Glerártorg og sundlaugina og steinsnar í leikskóla og skóla.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. jún. 2021
26.900.000 kr.
29.000.000 kr.
94.8 m²
305.907 kr.
12. júl. 2018
20.650.000 kr.
24.000.000 kr.
94.8 m²
253.165 kr.
9. jún. 2016
16.400.000 kr.
21.500.000 kr.
94.8 m²
226.793 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026