Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Hilmar Arnarson
Vista
fjölbýlishús

Reykás 26

110 Reykjavík

66.900.000 kr.

872.229 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2046393

Fasteignamat

58.800.000 kr.

Brunabótamat

40.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1983
svg
76,7 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 19. september 2026 kl. 16:00 til 17:00

Opið hús: Reykás 26, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 03 01 02. Eignin verður sýnd .

Lýsing

Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 2-3ja herb. íbúð að Reykás 46 í Reykjavík. Útbúið hefur verið auka herbergi í hluta af stofu og nýtist í dag sem barnaherbergi. Íbúðinni fylgir sér afgirt viðarverönd til suðurs (ca 40 m2) og innan íbúðar er þvottahús og geymsla. Rafmagnshleðslustöðvar eru komnar út á bílaplan til afnota fyrir íbúa. Einnig er búið að halda húsinu vel við og endurnýja teppi og mála sameign. Virkilega falleg eign, í góðu hús og rólegu og barnvænu hverfi. Göngufæri er í leik- og grunnskóla, sundlaug og íþróttamiðstöð Fylkis. Einnig eru fínir hjóla- og göngustígar um hverfið og niður í náttúruparadísina í Elliðaárdalnum og Víðidalnum.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / [email protected] 

Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 76,7 m2.


*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!

Smelltu hér og þú færð söluyfirlit strax
Nánari lýsing:
Forstofa
 er inn af snyrtilegum teppalögðum stigagangi. Nýleg teppi og nýmáluð sameign. Innan íbúðar er komið inn á flísalagt gólf. Parket tekur svo við og flæðir inn um flest rými íbúðar. Parketið er frá 2024.
Herbergi I er mjög rúmgott með hvítum fataskáp á einum vegg. Gluggi vísar út að verönd íbúðar. Parket á gólfi herbergis.
Herbergi II er það rými sem áður var hluti af stofu. Gluggi þess vísar einnig út að verönd íbúðar og þar er einnig opnanlegt fag. Parket á gólfi herbergis.
Stofa er með glugga til suðurs og þar er gengið út á viðarverönd og garð til suðurs. Parket á gólfi stofu.
Viðarverönd út frá stofurými er skjólsæll sælureitur. Veröndin var byggð 2023 og er einnig með geymslu sem skýlir útihúsgögnum og leiktækjum. Veröndin er afgirt og með hliði út á grasflöt aftan við hús. Þar er einnig göngustígur sem leiðir mann um hverfið. 
Eldhús er í opnu rými með stofu og möguleiki að opna enn frekar. Hvít innrétting á tveimur veggjum og milli efri og neðri skápa eru hvítar veggflísar. Viðarborðplata, helluborð og vifta. Stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp. Parket á gólfi. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, hvítar upp veggi og dökkgráar á gólfi og upp baðkar. Hvít innrétting undir handlaug, veggfestir skápar og spegill, króm-handklæðaofn, salerni og baðkar með sturtu. Nýleg blöndunartæki í sturtu.
Þvottahús og geymsla eru inn af forstofu. Þar er rafmagnstafla íbúðar. Léttir veggir eru milli eldhúss og geymslu sem býður upp á möguleikann að opna á milli. 
Hjóla- og vagnageymsla eru í sameign á sömu hæð og íbúð. Gott aðgengi er út á steyptan ramp framan við hús.
Lóðin er gróin með grasfleti og trjám umhverfis húsið. Virkilega falleg aðkoma og vel við haldin lóð. Bílastæðin eru nýmáluð og eru komnar rafmagnshleðslustöðvar fyrir íbúa.

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 8640061 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.

RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. des. 2021
34.800.000 kr.
49.500.000 kr.
76.7 m²
645.372 kr.
15. maí. 2020
34.000.000 kr.
38.000.000 kr.
76.7 m²
495.437 kr.
21. júl. 2017
24.700.000 kr.
30.000.000 kr.
76.7 m²
391.134 kr.
10. júl. 2014
16.650.000 kr.
25.000.000 kr.
76.7 m²
325.945 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone