Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Hilmar Arnarson
Upplýsingar
svg
Byggt 1965
svg
209,4 m²
svg
7 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

RE/MAX ásamt Guðlaugu Jónu lg. og Garðari Hólm lgf. kynna: Glæsilegt 209,4 fm einbýlishús með bílskúr og aukaíbúð við Fagrabæ 3, í Árbæ/Reykjavík. Húsið stendur á 764 fm skjólgóðri og gróinni lóð í rótgrónu fjölskylduhverfi. Húsið skiptist í rúmgóða aðalíbúð með 4 svefnherbergjum auk bílskúrs og aukaíbúð með einu svefnherbergi. Verönd er að hluta til yfirbyggð með glerlokun. Innréttingar í aðalrými eru sérsmíðaðar frá Brúnás. Lóðin er stór, gróin og einstaklega skjólgóð, með grasflötum, trjám og runnum. Húsinu hefur verið vel viðhaldið síðustu ár og lýtur vel út.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu, íþróttaaðstöðu og fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir.

Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi og góðum, innbyggðum fataskápum. Inn af forstofu tekur við bjart hol sem tengir saman helstu rými hússins.
Stofa og borðstofa mynda glæsilegt og rúmgott samliggjandi alrými. Stórir gluggar á fleiri en einn vegu sem gera rýmið einstaklega bjart og fallegt.  Arinn með dökkri steinklæðningu setur sterkan svip á rýmið og skapar hlýlega stemningu. Í stofu og borðstofu er parket á gólfi og flísar í kringum arinn og inn í eldhús.
Eldhúsið er rúmgott og vel búið með vandaðri viðarinnréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi og górði vinnuaðstöðu. Þar eru meðal annars innbyggður bakarofn og örbylgjuofn, tengi fyrir uppþvottavél og stórt rými fyrir kæli- og frystiskáp. Góður borðkrókur er í björtu rými í eldhúsi. Flísar eru á gólfi.
Svefnherbergin í aðalíbúðinni eru fjögur. Hjónaherbergið er rúmgott með stórum glugga og veglegum, innbyggðum fataskápum. Hin herbergin eru björt og nýtast vel sem barna-, gesta- eða vinnuherbergi.
Baðherbergið er flísalagt og búið baðkari, upphengdu salerni og rúmgóðri viðarinnréttingu með góðu hirsluplássi.
Gestabaðherbergi er með upphengdu salerni, handlaug og flísum á gólfi og veggjum ásamt spegli með ljósum. 
Þvottahús er með innréttingu, skolvaski og góðu geymsluplássi. Þar er jafnframt sérstök sturtuaðstaða. 
Verönd: Úr húsinu er gengið út á rúmgóða, yfirbyggða og glerlokanlega verönd sem myndar notalegt aukarými. Frá veröndinni er gott aðgengi að viðarpalli og garði.
Bílskúr: Er í dag með parketi á gólfi og hefur verið nýttur sem tómstundarrými eða auka svefnherbergi.

Aukaíbúð:
Aukaíbúðin er björt og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð.
Þar er opið alrými með stofu, borðstofu, eldhúsi og baðherbergi.
Eldhúsið: Er með hvítri og snyrtilegri innréttingu með góðu vinnu- og skápaplássi. Úr stofunni er útgengt á lóð.
Svefnherbergið: Er bjart og rúmgott.
Baðherbergið: Er flísalagt með sturtu og upphengdu salerni.


Nánari upplýsingar um eignina veita:
Guðlaug Jóna lgf. í gegnum [email protected] eða s. 661-2363
Garðar Hólm lgf. í gegnum [email protected] eða s. 899-8811

 

RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone