Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Hilmar Arnarson
Vista
fjölbýlishús

Eskivellir 11

221 Hafnarfjörður

69.900.000 kr.

835.125 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2505015

Fasteignamat

66.500.000 kr.

Brunabótamat

51.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2020
svg
83,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Ástþór Reynir, löggiltur fasteignasali, og Ragna Steinunn, aðstoðarmaður fasteignasala hjá RE/MAX, kynna í einkasölu 

Björt og vel skipulögð 3ja herbergja horníbúð með útsýni á Völlunum.
Til sölu er einstaklega björt og falleg 83,7 m² þriggja herbergja íbúð á 4. hæð í vönduðu fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað á Völlunum í Hafnarfirði.
Íbúðin er horníbúð á enda hússins og nýtur því birtu og fallegs útsýnis í tvær áttir. Skipulagið er gott og hver fermetri vel nýttur. Eignin skiptist í forstofu, bjart alrými með stofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu innan íbúðar. Úr alrýminu er gengið út á góðar svalir.
Fjölbýlishúsið var byggt árið 2020 og er snyrtilegt og nútímalegt.

Nánari lýsing
Forstofa: Snyrtileg forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskáp. Úr forstofu er gengið inn í geymslu íbúðarinnar.
Stofa og eldhús:
Bjart og rúmgott, parketlagt alrými með stórum gluggum og fallegu útsýni í tvær áttir. Úr stofunni er útgengt á góðar svalir.
Eldhús: Vönduð og vel skipulögð eldhúsinnrétting með góðu vinnu- og skápaplássi. Innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæli- og frystiskápur fylgja.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart herbergi með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Barnaherbergi: Gott parketlagt herbergi með fataskáp. Hentar einnig vel sem skrifstofa eða gestaherbergi.
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf. Þar er góð vaskinnrétting, sturta, upphengt salerni og rúmgóð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Góð geymsla er innan íbúðar og gengið er í hana beint úr forstofu.

Húsið og sameign
Húsið er sex hæða fjölbýlishús með 39 íbúðum. Það er staðsteypt og klætt álklæðningu að utan, með gluggum úr áli og timbri. Sameign er snyrtileg og þar er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Hleðslustöðvar fyrir rafbíla hafa verið settar upp á lóð hússins og standa íbúum til boða.
Staðsetning
Eignin er á fjölskylduvænum og vinsælum stað á Völlunum í Hafnarfirði. Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði, sundlaug, verslanir og fjölbreytta þjónustu.
Einstaklega vel skipulögð, björt og falleg horníbúð með góðum svölum og útsýni, frábær eign á eftirsóttum stað.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: 
Ragna Steinunn Arnarsdóttir aðstoðarmaður fasteignasali í síma 858-9494 eða [email protected]
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða [email protected]


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

img
Ástþór Reynir Guðmundsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
RE/MAX
Skeifunni 17, 108 Reykjavík
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
img

Ástþór Reynir Guðmundsson

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. júl. 2020
60.550.000 kr.
42.400.000 kr.
10403 m²
4.076 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone

Ástþór Reynir Guðmundsson

Skeifunni 17, 108 Reykjavík