Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórir Helgi Sigvaldason
Katla Hanna Steed
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Tinna Björk Bryde
Vista
fjölbýlishús

Jöklafold 41

112 Reykjavík

89.900.000 kr.

726.171 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2041916

Fasteignamat

82.750.000 kr.

Brunabótamat

61.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1986
svg
123,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 21. september 2026 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús: Jöklafold 41, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 21. september 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Lýsing

Rúmgóð 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með stórri viðarverönd og grillskýli
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna 123,8 m² rúmgóða og bjarta 4ra herbergja íbúð á jarðhæð við Jöklafold 41 í Grafarvogi. Íbúðinni fylgir sérafnotareitur með stórri viðarverönd, grillskýli og geymslurými á palli. Baðherbergi var endurnýjað árið 2026 og umfangsmiklar framkvæmdir fóru fram á ytra byrði hússins árið 2025. Eignin er vel staðsett í grónu, rólegu og fjölskylduvænu hverfi.

-  Jarðhæð með sérafnotareit og stórri viðarverönd
-  Grillskýli með innfelldri lýsingu og geymslurými á palli
-  Nýuppgert baðherbergi (2026)
-  Umfangsmiklar framkvæmdir á ytra byrði hússins (2025)
-  Þrjú rúmgóð svefnherbergi
-  Gróið og fjölskylduvænt hverfi í Grafarvogi


Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde, löggiltur fasteignasali, í síma 660-5532 eða á [email protected].

Íbúðin er skráð 123,8 m² samkvæmt HMS, þar af er íbúðin sjálf 115,3 m² og sérgeymsla 8,5 m². Sérgeymsla er inn af eldhúsi og innan íbúðarinnar.
Húsið er 7 íbúða fjölbýli. Húsfélagsgjöld eru 26.674 kr. á mánuði og innifela hita, rafmagn í sameign, húseigendatryggingu, þrif á sameign og almennan rekstur.

Nánari lýsing:
Komið er inn um forstofu í rúmgóða og bjarta íbúð.
Stofa og borðstofa mynda stórt og bjart alrými með parketi á gólfi og útgengi á stóra viðarverönd.
Eldhúsið er bjart og vel skipulagt, með hvítri innréttingu, viðarborðplötu, góðu skápaplássi og rúmgóðu vinnuplássi. Tengi er fyrir uppþvottavél og gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp. Í eldhúsið er bjartur borðkrókur með gluggum.
Inn af eldhúsi er 8,5 m² sérgeymsla sem tilheyrir íbúðinni.
Svefnherbergin eru þrjú, öll rúmgóð með parketi á gólfi og nýjum fataskápum.
Baðherbergið var endurnýjað árið 2026. Það er flísalagt á gólfi og veggjum, með gólfhita, vandaðri innréttingu með handlaug, upphengdu salerni, sturtu með glerskilrúmi og handklæðaofni. Þvottaaðstaða er inni á baðherbergi.
Gólfefni: Parket er á allri íbúðinni nema á baðherbergi sem er flísalagt.
Sérafnotareitur og pallur: Úr stofu er gengið út á stóran sérafnotareit með rúmgóðri viðarverönd og skjólveggjum. Á pallinum er grillskýli með innfelldri lýsingu og við hlið þess er geymslurými.

Viðhald og endurbætur:
Innan íbúðar:
- Baðherbergi endurnýjað vorið 2026.
- Gluggar í eldhúsi og geymslu endurnýjaðir sumarið 2025.
- Aðrir gluggar yfirfarnir og endurmálaðir.

Framkvæmdir á sameign 2025:
- Ytra byrði lagfært, múrviðgerðir og húsið málað.
- Þakkantur endurnýjaður að framan og yfirfarinn.
- Nýtt þakjárn og þakkantur á anddyri.
- Skipt um glugga í sameign.
- Skipt um hurðir á hjóla- og sorpgeymslu.
- Skipt um niðurfallsrör.

Sameign og umhverfi:
Eignin er vel staðsett í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Grafarvogi, þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, verslanir og aðra helstu þjónustu. Falleg útivistarsvæði eru í nágrenninu og stutt í göngu- og hjólaleiðir meðfram Grafarvogi og strandlengjunni.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde, löggiltur fasteignasali, í síma 660-5532 eða á [email protected].

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. des. 2019
43.550.000 kr.
44.000.000 kr.
123.8 m²
355.412 kr.
7. júl. 2014
24.600.000 kr.
29.000.000 kr.
123.8 m²
234.249 kr.
16. apr. 2007
22.320.000 kr.
27.500.000 kr.
123.8 m²
222.132 kr.
3. júl. 2006
19.550.000 kr.
25.000.000 kr.
115.3 m²
216.826 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone