Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Uglugata 2

270 Mosfellsbær

92.900.000 kr.

751.011 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2331340

Fasteignamat

84.050.000 kr.

Brunabótamat

75.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
123,7 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Hjólastólaaðgengi
Opið hús: 21. september 2026 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús: Uglugata 2, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 21. september 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Lýsing

** Opið hús mánudaginn 21. september frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi við Uglugötu 2 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 123,7 m2, þar af íbúð 106,9 m2 og geymsla 16,8 m2. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi/þvottaherbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla er í kjallara. Rúmgóðar og skjólsælar svalir í suðurátt. Fallegar innréttingar frá Parka. Tvö sérmerkt bílastæði á bílaplani. Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem skóla, leikskóla, ósnortna náttúru og göngu- og hjólastíga. 

 
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og parketi á gólfi. Úr herbergi er gengið út á lóð/bílastæði bakvið hús.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt baðherbergi með innréttingu og sturtu. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gluggi er á baðherbergi.
Eldhús er með fallegri innréttingu í opnu og björtu rými. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, vaskur, blástursofn, helluborð og vifta. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa er í opnu rými með eldhúsi. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar yfirbyggðar svalir í suðurátt. Svalirnar eru um 17 m2 (eru ekki í fermetratölu íbúðarinnar).
Sérgeymsla í kjallara er mjög rúmgóð og með glugga. Hefur verið nýtt sem skrifstofurými. Er skráð 16,8 m2.

Annað: Uglugata 2-4 er tveggja hæða fjölbýlishús ásamt geymslukjallara. Húsið er mestu leiti einangrað og álklætt að utan. Eignin skiptist í tvo opna stigaganga með fjórum íbúðum í hvorum stigagangi, samtals átta íbúðir. Upphituð stétt er fyrir framan og aftan hús. Húsið er hannað með tilliti þess að sameiginlegur rekstrar-og viðhaldskostnaður sé sem minnstur. Í stað sameiginlegs rýmis fyrir hjól og vagna eru stórar sérgeymslur í kjallara. Á lóð eru stæði fyrir 16 bíla og hefur húsfélagið merkt tvö stæði fyrir hverja íbúð. Húsið er hannað af Kristni Ragnarssyni arkitekt (Krark) og byggt af Hörðuból ehf.

Verð kr. 92.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. nóv. 2022
55.100.000 kr.
77.500.000 kr.
123.7 m²
626.516 kr.
15. feb. 2022
55.100.000 kr.
77.000.000 kr.
123.7 m²
622.474 kr.
24. ágú. 2018
19.800.000 kr.
49.900.000 kr.
123.7 m²
403.395 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ