Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Svavar Friðriksson
Vista
fjölbýlishús

Ásvellir 7 - 103

221 Hafnarfjörður

108.900.000 kr.

894.089 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2517747

Fasteignamat

2.376.750.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
121,8 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 6. október 2026 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir : Vandaðar nýjar 2-4ra herbergja íbúðir að Ásvöllum 3-9,  þar sem allt byggingarefnir uppfyllir ströngustu umhverfiskröfur.  Íbúðirnar á Ásvöllum eru Svansvottaðar samkvæmt útgáfu 3 fyrir nýbyggingar. Það þýðir að alltbyggingarefni sem sett er í bygginguna hefur verið samþykkt og uppfyllir kröfur Svansins. sem tryggir hágæða innivist, frábæra hljóðvist og fullkomið loftskiptakerfi sem tryggir hreint loft og hámarks heilbrigði.
Glæsileg 121,8fm fögurra herbergja íbúð á jarðhæð merkt 103 hæð í nýju 24 íbúða fjölbýlishúsi að Ásvöllum 7-9  ásamt stæði í bílgeymslu. Geymsla íbúðar er skráð : 15,1fm. Eignin skiptst í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, geymslu og stæði nr B44  í bílageymslu. Ásvellir 7  er nýtt 4 hæða fjölbýlishús sem er einstaklega vel staðsett við Haukaheimilið og Ásvallalaug. Stutt í alla almenna þjónustu, skóla og leikskóla. Traustur byggingaaðili Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. 
Sjá nánar íbúðir ÁSVELLIR
 Allar nánari upplýsingar og skoðun veitir Sigríður Rut löggiltur fasteignasali í gsm : 699-4610 eða [email protected] og Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 / [email protected] 


NÁNARI LÝSING : 
Forstofa góðum fataskáp frá GKS.
 Eldhús með fallegri innréttingu frá GKS. Helluborð frá BORA og önnur heimilistæki er frá AEG. Borðplöturn eru plastlagðar í gráum lit Kæli- og frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu. Eldhús er opið við stofu og borðstofu. 
Þvottahús / Búr er innaf eldhús með innrétting frá GKS. 
Stofa og borðstofa eru rúmgóð með gluggum á tvo vegu útgengt út á 12,1fm verönd.
Hjónaherbergi með fataherbergi innaf ásamt sérbaðherbergi, skápar frá GKS.
2 Svefnherbergi með skápum frá GKS. 
Baðherbergi með walk in sturtu, innréttingu við vask, upphengt salerni, flísar á gólfi og veggjum. Í kjallara er stæði nr B44 í lokaðri bílageymsla og góð sér geymsla.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara. Fallegur frágangur. 
Afhending í nóv. 2026

Ásvellir 3-19 eru 7 byggingar og 9 stigahús með samtengdum bílakjallara neðanjarðar undir garði á milli húsanna. Ein innkeyrsla er í bílakjallarann og þar eru samtals 101 bílastæði ásamt sameiginlegu bílaþvottastæði. Auk bílastæða í bílakjallara eru 60 bílastæði á lóð.  Húsin eru staðsteypt, einangruð og klædd að utan með álklæðningu og sementsbundnum plötum á jarðhæð. Gluggar eru álklæddir timburgluggar. Ásvellir skiptast í 9 stiga- og lyftuhús sem öll hafa aðgengi að bílakjallaranum úr sameign. Á jarðhæð eru aðalinngangar fyrir hvert stigahús fyrir sig. Á fyrstu hæð fylgja sérafnotareitir en á efri hæðum eru svalir sem fylgja öllum íbúðum. Í húsinu eru tveggja til fimm herbergja íbúðir. Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna, en með flísum á baðherbergjum og þvottahúsum. Með flestum íbúðum fylgir stæði í bílageymslu. Sameign og lóð skilast fullfrágengin. Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða gilda ef upp kemur misræmi milli þeirra og annarra gagna. Allt auglýsinga- og kynningarefni eins og tölvugerðar myndir og teikningar eru eingöngu til hliðsjónar. Laus búnaður o.þ.h. sem sýndur er á teikningum en er ekki talinn upp í skilalýsingu fylgir ekki. 

Íbúðirnar á Ásvöllum eru Svansvottaðar samkvæmt útgáfu 3 fyrir nýbyggingar. Það þýðir að allt byggingarefni sem sett er í bygginguna hefur verið samþykkt og uppfyllir kröfur Svansins.  Meginmarkmið Svansvottunar er að draga úr umhverfisáhrifum bygginga, sporna við hnattrænni hlýnun og vernda heilsu þeirra sem koma að verkinu á framkvæmdartíma sem og þeirra sem nota bygginguna eftir að hún er tekin í notkun. Kröfurnar ná einnig til gæðastjórnunar á verkstað, en skýr stýring á umhverfisþáttum og gæðastjórnun helst oft í hendur. Nánari upplýsingar um Svansvottun má finna á heimasíðu umhverfismerkisins Svansins https://svanurinn.is/voruflokkar/byggingar
Gæta skal að því byggingarefni sem keypt eru inn í íbúðina uppfylli þessar kröfur Svansins eins og t.d. gólfefni, undirlag, málning og kítti. Byggingarefni sem er umhverfisvottað og er með einhvern af þessum stimplum á umbúðunum uppfyllir sjálfkrafa kröfur Svansins. Ef ekki er stimpill til staðar er hægt að spyrja sölumenn hvort efnið sé leyfilegt til notkunar í Svansvottuð hús. 


 

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone