Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Vista
fjölbýlishús

Dalsbraut 15

260 Reykjanesbær

62.900.000 kr.

743.499 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2513199

Fasteignamat

57.500.000 kr.

Brunabótamat

54.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2022
svg
84,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur
Opið hús: 29. september 2026 kl. 17:45 til 18:15

Opið hús: Dalsbraut 15, 260 Reykjanesbær, Íbúð merkt: 105. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 29. september 2026 milli kl. 17:45 og kl. 18:15.

Lýsing

Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:

Dalsbraut 15, íbúð 105, 260 Reykjanesbær

Þriggja herbergja íbúð með tveimur svefnherbergjum, gólfhita og opnu alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast vel saman. Frá stofu er útgengt á 20,6 m² sérafnotareit með svalalokun og þaðan áfram út á verönd. Eigninni fylgir sérgeymsla og merkt bílastæði. Stutt er í leik- og grunnskóla.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun.


Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 84,6 m². Þar af er íbúðarrými 78,7 m², merkt 01-0105, og geymsla 5,9 m², merkt 01-0112. Húsið er byggt árið 2022. Fastanúmer eignarinnar er F2513199. Eigninni fylgja tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi.

Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa
er með fataskáp.
Eldhús er með hvítri og dökkri innréttingu, góðu skápaplássi og dökkri borðplötu. Þar eru bakaraofn í vinnuhæð, helluborð, háfur og uppþvottavél sem fylgir eigninni. Ísskápur fylgir ekki.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi eldhúsi í opnu alrými. Frá stofu er útgengt á 20,6 m² sérafnotareit með svalalokun. Gólf hefur verið flísalagt og þaðan er hurð út á verönd. Sérafnotareiturinn er ekki hluti af skráðum 84,6 m² eignarinnar.
Hjónaherbergi er með stórum fataskápum.
Svefnherbergi er staðsett við forstofu, með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt og með sturtu með glerþili, vaskinnréttingu, spegli og geymsluskáp. Þar er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Harðparket er á meginrýmum og svefnherbergjum. Flísar eru á baðherbergi og við inngang. Gólfhiti er í íbúðinni.

Geymsla og sameign
Eigninni fylgir 5,9 m² sérgeymsla. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð. Bílastæði eru í óskiptri sameign samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu en hafa verið merkt með íbúðanúmerum. Lögn er til staðar fyrir rafbílahleðslu.

Bygging og lóð
Húsið er tveggja hæða, byggt árið 2022, staðsteypt, einangrað að utan með steinull og klætt álklæðningu. Þak er frágengið með þakdúk og gluggar eru timbur/álgluggar með tvöföldu einangrunargleri. Húsið stendur á 4.343 m² leigulóð. Bílastæði eru malbikuð, gangstéttir hellulagðar og lóð tyrfð að mestu. Upphitaður gangstígur liggur frá bílastæðum að aðalinngangi.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / [email protected]


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

img
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valný fasteignasala
Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær
Valný fasteignasala

Valný fasteignasala

Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær
phone
img

Valgeir Leifur Vilhjálmsson

Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. maí. 2022
32.350.000 kr.
50.800.000 kr.
84.6 m²
600.473 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valný fasteignasala

Valný fasteignasala

Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær
phone

Valgeir Leifur Vilhjálmsson

Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær