Opið hús: Elliðabraut 20, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 05 03 02. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 1. október 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Eignin Elliðabraut 20 er skráð sem hér segir hjá FMR, birt stærð 80.0 fm. Íbúð 72,9 fm geymsla 7,1 fm
Um er að ræða bjarta og fallega 3 herbergja íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi að Elliðabraut 20. Húsið er byggt af Mótex árið 2020, fjöldi íbúða í húsinu eru 20. Mikið er lagt upp úr hljóðvist og loftgæði. Aukin lofthæð er í þessari eign sem er einn af sterkum kostum eignarinnar og gefur íbúðinni einstaklega bjart og rúmgott yfirbragð. Á gólfunum er harðparket frá Birgisson nema á baðherbergi þar eru flísar. Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og geymslu. Hvítir skápar upp í loft frá Axis. Innfelld lýsing frá Rafkaup. Svalirnar eru 12,5 fm. heimilt er að setja svalalokun.
Í kjallara eru einkageymslur fyrir hverja íbúð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sérstakt loftræstikerfi er í íbúðinni. Kerfið hefur loftskipti með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu og soga lofti út úr baði/þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður 80% af varmanum. Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki er þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunar. Öryggiskerfi er í sameign og í bílakjallara. Djúpruslagámar eru í jaðri lóðar á tveimur stöðum með flokkun. Sameign er rúmgóð og björt. Eignin getur verið laus fljótlega.
Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir lgf, í síma 8200788, tölvupóstur [email protected].
Bjarklind Þór lgf, í síma 6915123, tölvupóstur [email protected].
Nánari lýsing :
Forstofa: Harðparket á gólfi, þrefaldir fataskápar
Hjónaherbergi: Harðparket á gólfi, fataskápar
Barnaherbergi: Harðparket á gólfi tvöfaldur fataskápur
Baðherbergi: Baðinnrétting. Hreinlætistæki og handklæðaofn frá Byko. Salernið er upphengt og innbyggt. Gólfið er flísalagt og veggir að hluta upp í loft. Walk in sturta. Tengi fyrir þvottavél og þurkara
Eldhús: Harðparket á gólfi, innrétting með vaski frá Grohe blöndunartækum frá Byko. Helluborð, blástursofn og gufugleypir eru að gerðinni AEG frá Ormsson, innbygð uppþvottavél
Stofa/borðstofa: Harðparket á gólfi gengið út um rennihurð út á rúmgóðar 12,5 fm svalir, gólfsíðir gluggar að hluta. Heimilt er að loka svölunum með svalalokun
Geymsla: Geymsla er í kjallara
Umhverfi: Norðlingaholt er í nágrenni við Rauðhól, Rauðavatn, Heiðmörk og Elliðavatn en þar eru margar góðar gönguleiðir og stutt í náttúruna. Nýlega opnaði Bónus verslun í göngufæri við eignina. Einnig er Norðlingaskóli og leikskólinn Rauðhóll í göngufæri. Umhverfis húsið eru leiktæki, Björnslundur og einnig lítil tjörn sem vinsælt er að gefa fuglunum, margar gönguleiðir þ.a.s í kringum Elliðavatn og Rauðavatn. Vinsælt hefur verið á veturna að skauta á Rauðavatni.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 mvsk.