Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Jón Gunnarsson
Vista
svg

45

svg

44  Skoðendur

svg

Skráð  1. okt. 2026

raðhús

Staðarborg 24B

190 Vogar

85.300.000 kr.

660.217 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2527922

Fasteignamat

73.700.000 kr.

Brunabótamat

67.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2023
svg
129,2 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Ásberg fasteignasala kynnir;

Ásberg fasteignasala kynnir í sölu vel skipulagt 129,2 m² raðhús á tveimur hæðum að Staðarborg 24 B í Vogum.

Fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi/snyrtingar og frábært sjávarútsýni af svölum á efri hæð.
Um er að ræða virkilega rúmgóða og fjölskylduvæna eign á frábærum stað í ört vaxandi og rólegu bæjarfélagi í Vogum. Húsið er einstaklega vel skipulagt með fjórum svefnherbergjum, björtu alrými með eldhúseyju, sérþvottahúsi og svalir sem bjóða upp á einstakt útsýni til sjávar.
Laus við kaupsamning

Nánari lýsing
Neðri hæð:
Forstofa: Rúmgóð og snyrtileg með flísum á gólfi.
Svefnherbergi I: Staðsett á neðri hæð með parketi á gólfi (hentar einkar vel sem barnaherbergi, gestaherbergi eða vinnuherbergi).
Gestasnyrting: Flísalagt á gólfi og veggjum, snyrtileg innrétting við vask, upphengt salerni og handklæðaofn.
Eldhús: Falleg og snyrtileg innrétting frá Parka sem nær upp í loft með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Eldhúseyja með helluborði og bakarofni sem tengir eldhúsið skemmtilega við stofuna.
Stofa og borðstofa: Opið og bjart rými í samflæði við eldhús, parket á gólfi og útgengi út á baklóð þar sem kjörið er að koma upp góðri verönd.
Stigi: Fallegur og snyrtilegur tréstigi sem liggur upp á efri hæðina.
Efri hæð:
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með parketi á gólfi, góðum fataskáp og útgengi út á svalir með dásamlegu sjávarútsýni.
Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og veggjum, innrétting við vask, sturta, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús: Sérherbergi með flísum á gólfi og veggjum.

Að framan er malbikað bílaplan með tengi/hleðslustöð fyrir rafbíl. Steyptar stéttar liggja að inngangi ásamt lítilli útigeymslu. Baklóð býður upp á frábæra möguleika til að byggja verönd eða pall

Virkilega skemmtileg, rúmgóð og vel skipulögð fjölskyldueign á frábærum stað í Vogum sem vert er að skoða.

Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Ásbergs í síma 421-1420 eða á skrifstofu að Hafnargötu 27. www.asberg.is  [email protected] 

Jón Gunnarsson, löggiltur fasteignasali í síma 894-3837, [email protected]
Þórunn Einarsdóttir síma 898-3837, [email protected]
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu er kr. 69.900 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Ásberg fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Jón Gunnarsson Lgf  Fasteigna- og skipasali  Sími 894-3837
Þórunn Einarsdóttir Nám Fasteigna- fyrirtækja og skipasali Sími 898-3837

Vantar allar eignir á skrá. Frítt sölumat.

Fasteignasalan Ásberg

Fasteignasalan Ásberg

Hafnargötu 27, 230 Keflavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. des. 2023
36.400.000 kr.
319.600.000 kr.
516.8 m²
618.421 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan Ásberg

Fasteignasalan Ásberg

Hafnargötu 27, 230 Keflavík
phone