Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Svavar Friðriksson
Sigríður Rut Stanleysdóttir
Vista
fjölbýlishús

Bjarkarás 5

210 Garðabær

104.900.000 kr.

866.226 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2284522

Fasteignamat

97.100.000 kr.

Brunabótamat

66.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
121,1 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 4. október 2026 kl. 14:00 til 14:30

Opið hús: Bjarkarás 5 sunnudag 4. október 2026 frá kl.14:00- 14:30.

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Gullfallega 4ra herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð. Aukin lofthæð er í íbúðinni sem gefur henni fallegt yfirbragð.  Eignin er með lokaða 28,3 fm timburverönd í vestur. Fallegt útsýni úr svefnherbergjum til austurfjalla. Íbúðin var mikið endurnýjuð 2020.  Allar upplýsingar veitir Dórothea fasteignasali s:8983326, [email protected]

Samkvæmt FMR er íbúðin skráð 121,1 fm með geymslu innan íbúðar. Íbúðin var upprunalega teiknuð sem 3ja herb. en er í dag 4ra herbergja. 2020 var endurnýjað eldhús, þvottahús, öll gólfefni ásamt innihurðum og fataskápum í forstofu, hjónaherbergi og stærra barnaherberginu. 
Sækja söluyfirlit hér.

Nánari lýsing: Flæðandi harðparket er í alrými, gangi og svefnherbergjum. Samskonar flísar í forstofu, baðherbergi og þvottahúsi/geymslu.
Komið er inn í forstofu með fallegum flísum og góðum fataskáp. Gengið er inn í stórt alrými eldhúss, borðstofu og stofu með gluggum eftir öllu rýminu. Eldhús er með mjög rúmgóðri hvítri innréttingu í L frá Kvikk með ljósum stein á borði. Spanhelluborð frá AEG. Tvöfaldur AEG Stálofn í vinnuhæð. Efri ofn er Combiofn/ örbylgjuofn og ofn. Innbyggður ísskápur og innbyggður frystir í sömu stærð. Innbyggð uppþvottavél. Góður búrskápur.  Rúmgóð og björt borðstofa og stofa með útgengi út á lokaða timburverönd í vestur. Frá gangi: Barnaherbergi með innbyggðum fataskáp. Rúmgott barnaherbergi með fataskápum. Rúmgott og bjart hjónaherbergi með fataskápum eftir heilum vegg. Baðherbergi er með stóru baðkari með sturtuaðstöðu, upphengt salerni og hvítri innréttingu með spegli fyrir ofan. Gengið er inn í þvottahús og geymslurými frá gangi með rennihurð. Þvottahús er með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Góð vinnuaðstaða með vaski.
Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla ásamt sorpgeymslu er í sér húsi næst íbúðinni. Sameiginleg bílastæði eru við fjölbýlið ásamt tveimur sameiginlegum hleðslustöðvum.
Hér er um að ræða rúmgóða fjölskyldueign með sérinngangi og einstaklega vel hirtum sameiginlegum garði efst á hæðinni í Ásahverfinu í Garðabæ. Strætó stoppar beint fyrir framan fjölbýlið og göngufæri í frekari almenningssamgöngur við Reykjavíkurveg. Allar frekari upplýsingar veitir Dórothea E. Jóhannsdóttir fasteignasali, [email protected] , s:898-3326.
 

img
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Dórothea E. Jóhannsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. okt. 2019
52.200.000 kr.
61.000.000 kr.
121.1 m²
503.716 kr.
23. feb. 2017
43.400.000 kr.
51.500.000 kr.
121.1 m²
425.268 kr.
11. okt. 2013
30.400.000 kr.
37.500.000 kr.
121.1 m²
309.661 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Dórothea E. Jóhannsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ