Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Gautland 15

108 Reykjavík

70.900.000 kr.

924.381 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2036969

Fasteignamat

67.800.000 kr.

Brunabótamat

41.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1968
svg
76,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Björt og rúmgóð þriggja herbergja íbúð á 3. hæð á frábærum stað í góðu fjölbýlishúsi í Löndunum í Fossvogi að Gautlandi 15 í Reykjavík. Eignin hefur fengið gott viðhald síðustu ár bæði að innan sem utan. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 76,7 fm. og þar af er geymsla 4,6 fm. 

Eignin skiptist í anddyri/hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, ásamt alrými með eldhúsi, borðstofu, stofu og útgengi á rúmgóðar svalir ásamt sér geymslu í sameign.

Nánari lýsing eignar:

Anddyri/hol með fatahengi og parket á gólfi. 
Eldhús er opið við stofu sem mynda alrými eignarinnar með parketi á gólfi. Góð innrétting með innbyggðri uppþvottavél, helluborð, gufugleypir og bakarofn í vinnuhæð.
Stofa og borðstofa er rúmgóð og björt með fallegum gluggum. Úr stofu er útgengi út á rúmgóðar svalir sem snúa í suð-vestur.
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. 
Svefnherbergi rúmgott með parketi á gólfi. 
Baðherbergi með innangengum sturtuklefa, innrétting handklæðaofn, upphengt salerni og flísalagt í hólf og gólf. 
Geymsla íbúðar er í sameign í kjallara hússins.

Sameiginlegt þvottahús er í sameign. Eingöngu 3 íbúðir í húsinu eru að nota þessa aðstöðu.
Hjóla- og vagnageymsla. 

Eignin hefur fengið gott viðhald síðustu ár.
 Innanhúss: 
- 2019 Ný hurð í íbúð.
- 2020 Gólfefni endurnýjuð, baðherbergi endurnýjað, nýjar hurðar settar í öll herbergi og ofn í stofu endurnýjaður.  
Utanhúss:
- 2015 Skólplagnir blokkarinnar voru fóðraðar.
- 2018 Skipt um glugga á norðurhlið hússins.
- 2022 Húsið var múrviðgert og málað að utanverðu, þak og þakrennur hússins voru endurnýjuð, ný skilrúm og handrið sett á milli íbúða á svölum, allt gler í gluggum á suðurhlið endurnýjað, sameignarhurðar endurnýjaðar við hjólageymslu og bakútgang.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð, miðsvæðis í borginni á grónum stað þar sem stutt er í leikskóla, skóla, fallegar gönguleiðir í Fossvogsdalnum, verslanir og þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 899-5949 eða á netfanginu [email protected] 
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. ágú. 2019
37.600.000 kr.
37.000.000 kr.
76.7 m²
482.399 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík