Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson
Sveinbjörn Rosen Guðlaugsson
Böðvar Reynisson
Vista
raðhús

Núpahraun 31

815 Þorlákshöfn

70.500.000 kr.

675.935 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2515366

Fasteignamat

63.850.000 kr.

Brunabótamat

69.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2024
svg
104,3 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Eignaland fasteignasala kynnir Núpahraun 31, fallegt og vel skipulagt 104,3 m² parhús á einni hæð í nýlegu og fjölskylduvænu hverfi í Þorlákshöfn. Húsið er byggt árið 2024 og er því nýlegt og með nútímalegum frágangi. Eignin er einstaklega vel nýtt, með þremur svefnherbergjum, rúmgóðu og björtu alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda eina heild, auk góðs þvottahúss og snyrtilegs baðherbergis. Harðparket er á gólfum herbergja og alrýmis en flísar á votrýmum og forstofu. Gólfhiti er í allri eigninni, með stýringum.

BÓKAÐU EINKASÝNINGU:
Böðvar Reynisson Lögg.fasteignasali., í síma 7668484, tölvupóstur [email protected].
Jens Magnús Jakobsson Lögg.fasteignasali., í síma 893-1984, tölvupóstur [email protected].


Núpahraun 31, 815 Þorlákshöfn, nánar tiltekið skv. FMR, eign merkt 01-03, fastanúmer 251-5366 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Birt stærð 104,3

Skipulag eignarinnar:
Forstofa: Gengið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Þvottahús: Úr forstofu er gengið inn í þvottahús, sem er með flísalögðu gólfi, innréttingu og vaski. Þvottahúsið er vel staðsett og nýtist jafnframt sem góð geymsluaðstaða.
Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu og björtu alrými.
Eldhúsið er með ljósri L-laga innréttingu og dökkri borðplötu. Þar eru m.a. innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð. Stofan er rúmgóð og býður upp á góðan borðstofu- og stofukrók. Úr stofunni er gengið út um stóra rennihurð á steypta verönd og útisvæði.
3x svefnherbergi: Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, þar af rúmgott hjónaherbergi ásamt tveimur minni herbergjum. Fataskápar eru í öllum herbergjum.
Baðherbergið er snyrtilegt og vel frágengið, með flísum á gólfi og á sturtusvæði. Falleg innrétting með góðu skápaplássi, upphengdu salerni, handklæðaofni og rúmgóðri flísalagðri sturtu með glerþili.

Útisvæði og geymsla
Lóðin er frágengin með steyptu bílaplani, steyptri verönd og þökulagðri baklóð. Einnig fylgir eigninni 4,6 m² útigeymsla, staðsett undir þakskyggni við húsið. Húsið og nágrannaeignin eru tengd saman með skyggni sem skapar skjól við inngang og aðkomu.

Staðsetning
Núpahraun 31 er í nýlegu íbúðahverfi í Þorlákshöfn. Þorlákshöfn er ört vaxandi bæjarfélag við sjávarsíðuna þar sem góð grunnþjónusta er til staðar og stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamannvirki, sundlaug og aðra þjónustu.
Einnig er stutt í golfvöll og fjölbreytta útivist og náttúru, auk þess sem staðsetningin gefur gott aðgengi að höfuðborgarsvæðinu og öðrum byggðakjörnum á Suðurlandi.

Helstu kostir eignarinnar:
• Nýlegt hús, byggt 2024
• 104,3 m² á einni hæð
• Þrjú svefnherbergi
• Bjart og rúmgott opið alrými
• Vel búið eldhús með innbyggðum tækjum
• Gólfhiti
• Walk-in sturta
• Gott þvottahús með innréttingu og vaski
• 4,6 m² útigeymsla
• Steypt bílaplan
• Steypt verönd og frágengin baklóð
• Sérinngangur
• Nýlegt og fjölskylduvænt hverfi
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Böðvar Reynisson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Eignaland
Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
Eignaland

Eignaland

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
phone
img

Böðvar Reynisson

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. feb. 2024
46.050.000 kr.
199.500.000 kr.
313.2 m²
636.973 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignaland

Eignaland

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
phone

Böðvar Reynisson

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi