Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Vista
hæð

Ásvallagata 26

101 Reykjavík

149.000.000 kr.

1.006.077 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2003943

Fasteignamat

109.750.000 kr.

Brunabótamat

68.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1949
svg
148,1 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - [email protected] og Betri Stofan fasteignasala kynna: Tæplega 150 fermetra sérhæð, Ásvallagata 26. Glæsileg og mikið endurnýjuð sérhæð í Vesturbænum með sérinngangi í virðulegu húsi teiknuðu af Halldóri H. Jónssyni. Húsið stendur við sögufræga og eftirsótta íbúðagötu í 101 Reykjavík. Húsið sjálft hefur fengið gott viðhald að utan, var endursteinað og skartar koparrennum. Sérbílastæði er á lóð og kjallararými býður upp á skemmtilega möguleika, m.a. á útleigu. Þrjár íbúðir eru í húsinu og sérhæði og kjallaraíbúð eru í eigu sömu aðila.  Endurnýjun: Eldhús endurnýjað, nýlegt baðherbergi og þvottahús, nýlegt parket og teppi, ásamt framkvæmdum að utan. Staðsetning: Einn vinsælasti og virðulegasti staðurinn í Vesturbænum – í göngufæri við miðbæinn, skóla og alla helstu þjónustu.

Lýsing:
Anddyri: Komið er inn um sérinngang í flísalagt anddyri. Íbúðin er á miðhæð hússins og gengið beint inn frá tröppum.
Hol & Stofur: Rúmgott hol tengir saman alrými eignarinnar. Stofa og borðstofa eru samliggjandi, mjög bjartar og glæsilegar með mikilli lofthæð, stórum frönskum gluggum, nýlegu parketi og vönduðum arni sem setur hlýlegan svip á rýmið. Góð lofthæð.
Eldhús: Endurnýjað árið 2015, opið og tengist borðstofunni vel. Vandaðar innréttingar og tæki.
Svefnherbergi: Aðalsvefnherbergi: Mjög rúmgott með nýlegu teppi á gólfi. Án fataskáps en pláss fyrir þá samt sem áður.
Aukaherbergi / Vinnuherbergi: Staðsett á milli eldhúss og herbergjagangs. Nýtist frábærlega sem skrifstofa, vinnustofa eða barnherbergi (teppi á gólfi).
Forstofuherbergi: Rými sem býður upp á fjölbreytta nýtingu sem svefnherbergi eða aukastofa/sjónvarpsherbergi.
Baðherbergi: Rúmgott og nýlega endurnýjað á glæsilegan hátt. Var áður baðherbergi og svefnherbergi.
Gólfhiti er á gangi, baðherbergi og herbergjum.

Kjallari (Sérrými): Í kjallara eru skráðir aukalega 26,6 fm sem skiptast í sérþvottahús, snyrtingu, geymslur og aukaherbergi. Rýmið í kjallaranum býður upp á frábæra nýtingarmöguleika, t.d. sem vinnustofa, unglingaaðstaða eða útleigueining.

Húsið og lóðin: Húsið er virðulegt og hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Að utan hefur það verið endursteinað og nýjar koparrennur.

Staðsetning: Staðsetningin gerist varla betri í Vesturbænum – stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, sundlaug og kaffihús, auk þess sem örstutt er að rölta inn í miðbæ Reykjavíkur.

Allar nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - [email protected] löggiltur fasteignasali.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Jason Kristinn Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Betri Stofan Fasteignasala
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
img

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. maí. 2021
67.050.000 kr.
92.000.000 kr.
148.1 m²
621.202 kr.
11. júl. 2017
54.500.000 kr.
78.500.000 kr.
148.1 m²
530.047 kr.
20. jún. 2008
29.250.000 kr.
48.500.000 kr.
148.1 m²
327.481 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík