Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Svavar Friðriksson
Sigríður Rut Stanleysdóttir
Vista
fjölbýlishús

Básbryggja 15

110 Reykjavík

84.900.000 kr.

681.380 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2243621

Fasteignamat

85.500.000 kr.

Brunabótamat

68.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1999
svg
124,6 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 8. október 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Básbryggja 15, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 02 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 8. október 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir:  Gullfalleg, töluvert endurnýjuð og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð með tvennum svölum og græn svæði beggja megin við húsið. Íbúðin skiptist í forstofu, rúmgóða stofu sem opin er að hluta inn í eldhús, sjónvarpsrými – nú nýtt sem borðstofa, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Í sameign er sérgeymsla. Næg bílastæði fyrir utan húsið. Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir í síma 837-8889 eða hjá [email protected]

Nánari lýsing: Básbryggja 15 er 6 íbúða, þriggja hæða fjölbýli byggt árið 1999 í Bryggjuhverfinu. Húsið stendur við skiptingu götunnar og því er engin aukaumferð við húsið og næg bílastæði. Sameiginleg skjólgóð lóð er fyrir aftan húsið og framan við það er fótboltavöllur og mjög gott leiksvæði fyrir börn með leiktækjum og ærslabelg. Stutt er í leikskóla og grunnskóla í Hamrahverfi Grafarvogs. 3 mín gangur er á strætóstöð. Húsinu hefur verið vel við haldið í gegnum tíðina.
Forstofa: Með fataskáp og flísum á gólfi.
Sjónvarpsrými: Nú nýtt sem borðstofa staðsett í miðju íbúðarinnar.
Stofa: Mjög rúmgóð og rúmar auðveldlega einnig borðstofu. Útgengi út á rúmgóðar, skjólgóðar suðvestursvalir.
Eldhús: Með vandaðri U-laga innréttingu, nýlegum eldhústækjum og góðu skápaplássi. Auka innrétting hönnuð fyrir tvöfaldan ísskáp. Barborð. Gluggi.
Svefnherbergin: Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni á vinstri hönd þegar komið er inn. Hjónaherbergið er með fataskáp yfir heilan vegg og útgengi á rúmgóðar austursvalir. Hin herbergin tvö eru bæði rúmgóð og eru með tvöföldum fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með baðkari og sturtuklefa. Innrétting við vask, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús:  Ágætlega rúmgott og nýtist einnig sem aukageymsla inn í íbúð.
Sameign: Í sameign fylgir sérgeymsla, vagna- og hjólageymsla sem og sérdekkjageymsla.
Bryggjuhverfið er vel skipulagt hverfi með smábátahöfn, það er skjólsælt og býður upp á fallegar göngu- og hjólaleiðir til nærliggjandi svæða á borð við Geirsnef, Elliðaárdal og Grafarvog. Stutt er á stofnleiðir og skammt að sækja alla helstu þjónustu upp á Höfða s.s. heilsugæslu, matvöruverslun, mathöll o.fl.
Virkilega falleg 4ra herbergja íbúð í litlu fjölbýli á góðum stað í Bryggjuhverfinu. Allar nánari upplýsingar gefur Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 837-8889 eða hjá [email protected]
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari
ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. ágú. 2012
24.300.000 kr.
25.200.000 kr.
124.6 m²
202.247 kr.
14. apr. 2009
27.310.000 kr.
38.000.000 kr.
124.6 m²
304.976 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone