Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Steindór Guðmundsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
245,7 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 10. október 2026 kl. 14:00 til 14:30

Lýsing

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Skjólbraut 9 Kópavogi.
Vandað, steypt og steinað 6 herbergja parhús, byggt 2006, á vinsælum og eftirsóttum stað miðsvæðis í Kópavogi. Róleg botngata en samt svo stutt í allt.
Allur frágangur vandaður, úti sem inni og viðhald gott.


Íbúðin er 217,9 fm á tveimur hæðum og bílskúr 27,8 fm. Alls 245,7 fm. 

Nánari lýsing:

Efri hæð. Flísalögð forstofa með fataskáp. Eldhús, borðstofa og stofa í opnu og björtu rými. Falleg eldhúsinnrétting með granít borðplötu. Skúffur í sökkli. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Flísar á eldhúsgólfi en parket á alrými og svefnherbergi sem er rúmgott og bjart.  Flísalagt baðherbergi með innréttingu og sturtu. Upptekin loft á efri hæð og innfelld lýsing. Svalir til suðurs út frá stofu.  Innangengt í bílskúr úr forstofu. Fallegur stigi er á milli hæða.

Neðri hæð. Flísalögð forstofa. Stór sjónvarpshol. Þrjú svefnherbergi. Parket á gólfum. Rúmgott flísalagt baðherbergi, baðkar, innrétting og opin sturta.   Þvottahús með innréttingum og fataherbergi með skápum við hlið þvottahúss. Falleg gólfefni og innréttingar.
Mögulegt er að setja upp aukaíbúð á neðri hæð ef vill. 

Bílskúr er eitt opið rými með millilofti. Hurðaopnari.

Stimpilsteypt rúmgott bílaplan með snjóbræðslu. Steyptar tröppur meðfram húsinu niður að neðri hæð. Góður sólpallur í skjólgóðum hlýlegum suðurgarði.

Virkilega notaleg og vel umgengin hlýleg eign.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali, [email protected] s. 8648090

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

img
Snorri Sigurfinnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
HÚS fasteignasala
Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
img

Snorri Sigurfinnsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. mar. 2010
52.550.000 kr.
54.500.000 kr.
245.7 m²
221.815 kr.
7. mar. 2007
27.415.000 kr.
49.900.000 kr.
245.7 m²
203.093 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum

Snorri Sigurfinnsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum