Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Arnar Birgisson
Lína Rut Olgeirsdóttir
Tryggvi Gunnarsson
Bergþóra Höskuldsdóttir
Vista
lóð

Vatnsendi Ólafsfirði

626 Ólafsfjörður

96.700.000 kr.

29 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2153783

Fasteignamat

36.983.000 kr.

Brunabótamat

62.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
3303088,6 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

EIGNAVER 460-6060.

Vatnsendi - Ólafsfirði.
Til sölu jörðin Vatnsendi í Ólafsfirði, jörðin er um 317 hektarar að stærð, þar af eru 13,3 hektarar skráðir sem ræktað land.
Á jörðinni stendur 88,6 fm. sumarhús sem var byggt 2012, falleg eign á einstökum stað.
Silungsveiðiréttur fylgir eigninni.


Bústaðurinn er með þremur svefnherbergjum, rúmgóðu baðherbergi með sturtu, eldhús, borðstofa og stofa eru í einu rými, upptekin loft og stórir og góðir gluggar í alrými þar sem hægt er að njóta dásamlegs útsýnis til fulls.
Stór og góð verönd er við húsið og þar er heitur pottur.

Nánari lýsing;
Forstofa, flísar á gólfi og fatahengi
Svefnherbergi, eru þrjú, öll með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi, flísar á gólfi og hluta veggja, góð sturta, útgönguhurð út á verönd þar sem er heitur pottur.
Alrými, stofa eldhús og borðstofa, parket á gólfi, upptekin loft, eikar eldhúsinnrétting.
Þvottahús/geymsla, gengið inn af verönd, flísar á gólfi og hillur. Inntaksrými lagna.
Verönd til suðurs og vesturs, heitur pottur og frábært útsýni.

Annað;
- Gólfhiti
- Stór verönd með heitum potti.
- Innbú getur fylgt með við kaupin.
- Húsið hannað með algilda hönnun í huga.

Eins og áður sagði er jörðin 317 hektarar, þar af eru 13,3 hektara sem eru skráðir sem ræktað land. Henni fylgir einnig silungsveiðiréttur í vatninu sem gefur arðgreiðslur auk þess að landeigendur hafa skv. samningi rétt til að veiða í vatninu.
Jörðin hentar einnig vel til skotveiði, auk þess er mikil berjaspretta á svæðinu.
Fyrir allmörgum árum var borað fyrir heitu vatni og fannst um 34 gráðu heitt vatn, það er notað til að hita upp húsið en í því eru gólfhitalagnir. Einnig er það notað sem neysluvatn en til að hækka hitann er það kynnt upp með rafmagni.

Jörðin er í einkasölu hjá Eignaveri. 

Nánari upplýsingar veita;
Arnar     s; 898-7011 / [email protected]
Begga   s; 845-0671 / [email protected]
Tryggvi  s; 862-7919 / tryggvi @eignaver.is
 

 

Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone
Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone