Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður J. Tyrfingsson
Haraldur Björnsson
Vista
fjölbýlishús

Strikið 4

210 Garðabær

89.900.000 kr.

1.096.341 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2273587

Fasteignamat

77.300.000 kr.

Brunabótamat

53.570.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
82 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Garðatorg Eignamiðlun. Sölumaður Sigurður s. 8983708
Útsýnisíbúð. Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 5. hæð í Sjálandinu í Garðabæ. Íbúðin er 82 m², björt og rúmgóð, með fallegu útsýni til Bessastaða og Snæfellsjökuls. Svalir með svalalokun snúa til vesturs. Sérmerkt bílastæði í bílageymslu fylgir eigninni. Eignin er laus við kaupsamning.
Nánari lýsing
Forstofa: Með fataskáp. Við hlið forstofu er ágætt vinnuherbergi. 
Stofa og borðstofa: Bjartar og rúmgóðar með fallegu útsýni til vesturs og norðurs. Útgengt er á svalir með svalalokun sem snúa til vesturs.
Eldhús: Opið og bjart með góðri innréttingu og skápaplássi.
Svefnherbergi: Rúmgott með fataskápum.
Baðherbergi: Með innréttingu og sturtu.
Þvottahús: Gott sérþvottahús með innréttingu og hillum.
Geymsla: Sérgeymsla er í kjallara.
Bílageymsla: Sérmerkt bílastæði merkt B005.
Sameign: Snyrtileg sameign og lyfta í húsinu.
Um er að ræða íbúð fyrir 60 ára og eldri. Innangengt er úr húsinu í Jónshús, félags- og þjónustumiðstöð eldri borgara í Garðabæ, þar sem fram fer fjölbreytt félags- og tómstundastarf. Þar er jafnframt hægt að fá heitan mat í hádeginu og aðra hressingu alla virka daga gegn vægu gjaldi.
Í húsinu er einnig rúmgóður samkomusalur sem íbúar geta leigt gegn vægu gjaldi.
Við húsið er einstaklega falleg og vel hirt lóð. Góðar gönguleiðir eru allt í kring.
Virkilega falleg og vel skipulögð eign með góðu útsýni á eftirsóttum stað í Sjálandinu í Garðabæ.
Áhugasamir vinsamlegast pantið skoðun hjá Sigurði í síma 898-3708.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Garðatorg eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar 
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð

Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg 7, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. ágú. 2014
25.250.000 kr.
33.000.000 kr.
82 m²
402.439 kr.
22. nóv. 2007
19.730.000 kr.
30.000.000 kr.
82 m²
365.854 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg 7, 210 Garðabæ