Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1978
242,2 m²
5 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
Þórhallur Biering, fasteignasali og Betri Stofan fasteignasala kynna í einkasölu:
Sérlega fallegt, mikið endurnýjað og vel skipulagt einbýlishús. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni og stendur á stórri, gróinni lóð á frábærum stað miðsvæðis í Garðabæ. Eignin er alls 242,2 m2, þar af er bílskúr um 50 m2 og um 30 m2 rými inn af bílskúr.
Skipulag hússins:
Miðpallur: Bjart anddyri, gestasnyrting, forstofa, stórt og bjart alrými með mikilli lofthæð, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og fataherbergi (svefnherbergi voru áður fjögur og hægt að fjölga aftur). Gengið út á skjólsælar verandir í garði fyrir framan og aftan húsið.
Efsti pallur: Stórt eldhús, borðstofa og björt stofa með mikilli lofthæð, arni og svölum. Góður stigi milli palla.
Neðsti pallur: Þvottahús með sturtu. Bílskúr með rafmagnshurðaopnara, innkeyrsluhurð og tveggja herbergja rými/einstaklingsíbúð með „kitchenette“. Inn af bílskúr er um 30 m2 rými.
Nánari lýsing:
Komið er inn á miðpallinn í bjart anddyri með fataskápum og gestasnyrtingu. Forstofa er falleg með mikilli lofthæð en þaðan er stór ný rennihurð út í gróinn garð með nýrri timburverönd. Á vinstri hönd er svefnálma, þar sem eru þrjú svefnherbergi (hægt að breyta aftur í fjögur) og nýstandsett fallegt baðherbergi. Fataherbergi inn af hjónaherbergi. Úr forstofu er gengið upp nokkrar tröppur á efsta pall þar sem er glæsileg arinstofa og útgengt á góðar svalir. Tengt borðstofu er nýstandsett eldhúsið sem er vel skipulagt með stórri innréttingu með steinborðplötum. Öll tæki ný, þar á meðal uppþvottavél og tvöfaldur ísskápur. Þvottahús með sturtu er á neðsta palli sem og bílskúr þar sem helmingurinn er nú tveggja herbergja rými/einstaklingsíbúð með „kitchenette“. Hinn helmingur bílskúrsins er með innkeyrsluhurð með rafmagnshurðaopnara. Inn af bílskúr er um 30 m2 óskráð rými sem er ekki með fulla lofthæð. Fyrir utan er stórt upphitað bílaplan sem rúmar auðveldlega þrjá bíla. Gróinn garður er allan hringinn með steyptum kanti við götu sem rammar húsið fallega inn.
Viðhald og endurbætur:
Húsið hefur verið mjög mikið endurnýjað. Þak endurnýjað fyrir um 6 árum og á síðustu mánuðum hefur húsið fengið mikla endurnýjun m.a. ný rafmagnstafla- og vatnslagnir, gólfhiti lagður í hluta hússins, ofnar endurnýjaðir, gler að miklum hluta, gólfefni og innréttingar. Eldhús og baðherbergin algerlega endurnýjuð sem og þvottahús. Þá er ný stór rennihurð, nýr rafmagnshurðaopnari, nýjar timburverandir annars vegar fyrir framan húsið og hins vegar út frá forstofu sem og nýir skjólveggir fyrir neðan og ofan hús. Grunnmyndir sýna nokkurn vegin skipulag hússins eftir breytingar.
Allar endurbætur og framkvæmdir eru ákaflega vel heppnaðar. Lóðin er 884 m2, vel gróin og staðsetning er frábær í afar snyrtilegu umhverfi. Stutt í skóla á öllum skólastigum, íþróttasvæði og þjónustu. Gróið og barnvænt hverfi. Næg bílastæði og mikill fuglasöngur.
Ath. Eignin verður aðeins sýnd í einkaskoðun.
Allar nánari upplýsingar gefur:
Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. maí. 2024
139.000.000 kr.
141.000.000 kr.
10101 m²
13.959 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026