Opið hús: Rauðalækur 27, 105 Reykjavík. Eignin verður sýnd mánudaginn 12. október 2026 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.
Lýsing
Eignin skiptist í forstofu, tvær stofur, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi og bílskúr. Geymsla á jarðhæð og þar er einnig sameiginlegt þvottahús.
Birtar stærðir skv. HMS : Íbúð 125,7 fm, geymsla 6,3 fm og bílskúr 29,7 fm Samtals 161,7 fm.
Nánari upplýsingar veita:
Halldór Freyr Sveinbjörnsson Lgf. í síma 693-2916 eða [email protected]
Nánari lýsing eignar:
Gengið er upp steyptar utanáliggjandi tröppur að aðalinngangi hússins. Þaðan er sérinngangur inn í íbúðina.
Forstofa /hol: Komið er inn í rúmgott hol með flísum á gólfi. Frá forstofu er gengið niður í sameign.
Hol/borðstofa: Komið er inn í hol frá anddyri sem er mjög rúmgott og tengir allar vistaverur hússins saman. Holið er opið að borðstofu og myndar stórt og bjart rými hol-borðstofa og stofa.
Borðstofa: Inn af holinu er komið inn í rúmgóða borðstofu með útgengt út á suðursvalir. Borðstofan er opin að stofunni.
Setustofa: Inn af borðstofunni er setustofa sem liggur í sama rými.. Setustofan er rúmgóð með gluggum á tvo vegu sem gerir hana einstaklega bjarta og skemmtilega.
Eldhús: Eldhúsið er virkilega rúmgott. Komið er inn þar sem borðkrókur við glugga tekur á móti þér. Eldhúsið var endurnýjað 2016 með fallegri hvítri innréttingu og viðarborðplötu. Innréttingin nær upp í loft með góðum tækjaskáp, tengi fyrir innbyggða uppþvottavél, spanhelluborð og háfur. Flísar eru á gólfum.
Baðherbergi: Baðherbergið er fallegt og var endurnýjað 2014. Baðherbergið er flísalagt, falleg innrétting, walk in sturta með glerskilrúmi opnanlegum glugga.
Hjónaherbergi: Mjög stórt og rúmgott hjónaherbergi með fataskápum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I: Inn af anddyri er rúmgott svefnherbergi með góðum gluggum á tvo vegu ásamt fataskáp.
Svefnherbergi II: Inn af holi. Nýtt sem hjónaherbergi í dag. Góður fatskápur. Parket á gólfi.
Þvottaherbergi/geymsla: Frá anddyri er gengið niður breiðar og góðar flísalagðar tröppur í sameign að sérgeymslu og sameiginlegu þvottahúsi.
Bílskúr: Virkilega góður 29,7 fm bílskúr er norðanmegin við húsið. Inngönguhurð er á hlið skúrsins sem liggur að inngangi íbúðar. Fyrir framan innkeyrsluhurð er mjög gott bílastæði sem er aðgengilegt frá botnlanga Rauðalæks 29-31.
Bílskúrnum er skipt upp í lokaða vinnustofu og opið rými.
Framkvæmdir síðustu ára samkvæmt eiganda.
2014 - Nýjarskólplagnir lagðar út að götu og drenað umhvefis húsið.
2014 - Dregið nýtt í rafmagnslagnir innan íbúðar, skipt um alla rofa og innstungur nema í eldhúsi. Sett ný rafmagnstafla fyrir hæðina.
2014 - Baðherbergi endurnýjað í september það ár.
2016 - Allir ofnar endurnýjaðir og kranar innan íbúðar.
2016 - Sett nýtt parkett á alla íbúðina.
2016 - Eldhús endurnýjað ásamt rafmagni, lögnum og eldhústækjum. Eldhúsinnrétting frá Innval og gólf flísalagt.
2018 - Hellulagt milli bílskúrs íbúðarhúss
2020 - Skipt um glugga í öllum svefnherbergjum innan íbúðar, geymslu, borðstofu og stofu.
2021 - Sameign máluð og flísalögð.
2021 - Þak slípað upp menjað og málað.
2023 - Húsið málað utan
2023 - Ný uppþvottavél og helluborð.
2025 - Allir gluggar endurnýjaðir í sameign.
Frábær staðsetning í nágrenni við útivistarparadísina í Laugardal með öllu því sem hann hefur upp á að bjóða. Stutt er í skóla, leikskóla sem og Laugardalslaug og World Class, auk þess að ýmsar sérverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður