Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Monika Hjálmtýsdóttir
Andri Sigurðsson
Sigurður Samúelsson
Sveinn Eyland
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir
Guðrún Diljá Lúðvíksdóttir
Júlíus Jóhannsson
Freyja Rúnarsdóttir
Jón Óskar Karlsson
Davíð Matthíasson
Erla Friðriksdóttir
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Grettisgata 47

101 Reykjavík

117.900.000 kr.

1.023.438 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2005476

Fasteignamat

96.500.000 kr.

Brunabótamat

67.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1902
svg
115,2 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Aldir fasteignir kynna: Grettisgata 47 - sérlega fallegt og mikið endurnýjað einbýli í Þingholtunum. Einstakt tækirfæri til að eignast mikið endurnýjað einbýli í miðborg Reykjavíkur. Húsið er einstakt uppgert timburhús í miðborg Reykjavíkur sem sameinar sjarma sögunnar, hlýlegt andrúmsloft og frábæra staðsetningu.   Sérbílstæði fylgir og er það staðsett við hlið hússins.

Húsið er selt með hefðbundnum fyrirvörum.  Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, [email protected] - 895-1098.


Komið er inn á miðhæðina, flísalögð forstofa og fataskápur. Opin og sérlega björt stofa með vínilparketi á gólfi.  Eldhús & borðstofa eru opin við stofuna. Í eldhúsinu er falleg innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Fallegur upphengdur háfur er í eldhúsinu sem hæfir rýminu vel. Fallegur viðarstigi er upp í risið. Þar er komið uppá gang með vínilparketi á gólfi. Stórt hjónaherbergi með góðum skápum og vínilparketi á gólfi.  Svefnherbergi með vínilparketi og fataskáp. Fallegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innrétting og sturtuklefi, gluggi er á baðinu. Gengið er niður í kjallarann frá opna rýminu á miðhæðinni. Komið er niður á gang eða anddyri og er útgangur út á lóðina. Stórt herbergi með fataskáp og vínilparketi á gófli (þetta herbergi gæti verið tvö minni herbergi).  Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, baðkar og innrétting. Þvottahús og geymsla er einnig í kjallaranum.  Sérbílastæði fylgir húsinu við hlið þess. Stór aflokuð hellulögð verönd/sólpallur er við húsið. 

Húsið var mikið endurnýjuð að innan á árunum 2018 til 2019.  Frárennsli var endurnýjað út í götu og skipt um dren. Raflagnir endurnýjaðar og skipt um töflu. Ofnalagnir endurnýjaðar og eldri ofnar sandblásnir og settur var gólfhiti í kjallarann.  Baðherbergin voru endurnýjuð sem og eldhús, gólfefni o.fl. Árið 2024 voru þrjár hliðar hússins klæddar að utan, settir nýjir þakgluggar og þakið málað og yfirfarið. Einnig voru sett upp Flexit loftræstitæki á efri hæðir hússins, það tryggir heilnæmt loftflæði í viðkomamandi rýmum.   Eignin nýtist betur en skráðir fermetrar þar sem hluti af gólffelti í risi er óskráður og því ekki inni í uppgefinni stærð. 

Húsið er klassískt timburhús eins og þau voru byggð í upphafi 20. aldar, það er byggt á hlöðnum grágrýtiskjallara eins og þá tíðkaðist. Lóðin er aflokuð með stórri hellulagðri verönd

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Aldir fasteignir

Aldir fasteignir

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. apr. 2023
71.450.000 kr.
97.900.000 kr.
115.2 m²
849.826 kr.
28. júl. 2017
42.300.000 kr.
54.500.000 kr.
115.2 m²
473.090 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Aldir fasteignir

Aldir fasteignir

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi