Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Svavar Friðriksson
Sigríður Rut Stanleysdóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 1998
svg
173,9 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan TORG og Helgi Jónsson lgfs, 780-2700 kynna : 
Mjög vel staðsett 149,1fm fimm herbergja raðhús ásamt 24,8fm bílskúr, samtals : 173,9fm. Eignin skiptist í forstofu, gestasalerni, eldhús, borðstofu, stofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi þvottahús og geymslu. Fallegur garður sem snýr í suður. Mjög fallegt útsýni frá svölum út frá stofu til suðurs. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á [email protected]


NÁNARI LÝSING :
Miðhæð :   
Forstofa : með fatahengi og flísum á gólfi. Hol : með innbyggðum skápum, parket á gólfi. Eldhús : með snyrtilegri innréttingu, flísar á milli skápa, uppþvottavél og ísskápur fylgja með, parket á gólfi. Stofa / Borðstofa : með parketi á gólfi, útgengt út á suður svalir með mjög fallegu útsýni. Gestasnyrting : með góðri innréttingu, flísar á gólfi og veggjum, gluggi er á baði.
Neðri hæð :
Hol : með parketi á gólfi. Hjónaherbergi : með skápum, parket á gólfi. Tvö góð svefnherbergi : með skápum, parket á gólfi. Baðherbergi : með baðkari með sturtuaðstöðu, innrétting við vask, flísar á gólfi og veggjum. Þvottahús : með snyrtilegri hvítri innréttingu, flísar á gólfi, útgengt út í fallegann garð. Geymsla : undir stiga.
Ris : 
Stórt parketlagt rými með súðargeymslum og þakgluggum. Upplagt sem svefnherbergi.
Bílskúr : með sjálfvirkum hurðaropnana, rafmagni og hita.

* 2025 Þök endurnýjuð á allri raðhúsalengjunni og settir nýir þakglugga. 2026. Allt húsið nýmálað að innan ásamt gluggum. Svalagólf flotað upp á nýtt. Verið er að klára að mála bílskúra að utan og greiðist það af seljanda.

Gnitaheiðin er í fallegu og grónu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla sem og fjölbreytta verslun og þjónustu. Stutt er til allra átta og samgönguleiðir mjög góðar, fyrir gangandi, akandi sem og hjólandi. Einnig er stutt í ýmiss konar afþreyingu og fjölmargar leiðir til útivistar.

  

 

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone