Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Monika Hjálmtýsdóttir
Andri Sigurðsson
Sigurður Samúelsson
Sveinn Eyland
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir
Guðrún Diljá Lúðvíksdóttir
Júlíus Jóhannsson
Freyja Rúnarsdóttir
Jón Óskar Karlsson
Davíð Matthíasson
Erla Friðriksdóttir
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Nönnugata 16

101 Reykjavík

69.800.000 kr.

874.687 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2007726

Fasteignamat

87.300.000 kr.

Brunabótamat

66.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1930
svg
79,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Aldir Fasteignir og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / [email protected]) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:
Eign sem býður upp á mikla möguleika í hjarta Reykjavíkur - 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í fallegu fjölbýlishúsi við Nönnugötu 16 í miðbæ Reykjavíkur.  Eignin er skráð 79,8 fm í steinsteyptu húsi á horni Nönnugötu og Njarðargötu. 
Sameiginlegur inngangur bakatil og frá Nönnugötu. Eigninni fylgir eignarhluti í sameiginlegu þvottahúsi ásamt tveimur sérgeymslum í kjallara hússins.  Aukin lofthæð er í allri eigninni eða um 2,8 metrar. 

Eignin er laus til afhendingar nú þegar.


Eignin er skráð 79,8 fm skv HMS og eru geymslur þar af 3,6 fm (0006) og 1,5 fm (0013) í kjallara. 

Nánari lýsing eignar:

Gangur sem tengir saman rými íbúðarinnar, með fatahengi og parket á gólfi. Sameiginlegur inngangur bakatil eða frá Nönnugötu.
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi, möguleiki á að skipta henni í tvennt.
Eldhús er rúmgott og bjart með góðri borðaðstöðu og góðum gluggum, hvítar + viðarinnréttingar og  tengi fyrir uppþvottavél og þvottavél, korkur á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, innrétting og upphengt salerni, flísalögð sturta með sturtugleri og opnanlegur gluggi.
Svefnherbergi er með góðum fataskápum, korkur á gólfi.
Geymsla með skápum og korkur á gólfi, möguleiki á að koma fyrir rúmi eða vera með vinnuaðstöðu.
Í kjallara hússins eru:
Tvær sérgeymslur sem eru 3,6 fm og 1,5 fm að stærð.
Sameiginlegt þvottahús með glugga, lakkað gólf og vaskur. Sértenglar fyrir hverja íbúð og nýleg lagnagrind. Rafmagnstafla í sameign hefur verið endurnýjuð ásamt lagnagrind.

Virkt húsfélag er í húsinu og stendur það vel.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað í miðborginni þaðan sem stutt er í leikskóla, barnaskóla, Háskóla Íslands, Sundhöll Reykjavíkur, verslanir, þjónustu og mannlíf miðborgarinnar.


Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða [email protected]
---------------------------------------------------------------------------

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

img
Freyja Rúnarsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Aldir fasteignir
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi
Aldir fasteignir

Aldir fasteignir

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi
img

Freyja Rúnarsdóttir

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. jún. 2025
78.550.000 kr.
76.000.000 kr.
10101 m²
7.524 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Aldir fasteignir

Aldir fasteignir

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi

Freyja Rúnarsdóttir

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi