Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Styrmir Bjartur Karlsson
Vista
fjölbýlishús

Reynimelur 49

107 Reykjavík

79.700.000 kr.

825.052 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2027075

Fasteignamat

84.050.000 kr.

Brunabótamat

51.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1940
svg
96,6 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 18. október 2026 kl. 13:00 til 14:00

Opið hús: Reynimelur 49, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 18. október 2026 milli kl. 13:00 og kl. 14:00.

Lýsing

CROISETTE kynnir í einkasölu fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð við Reynimel 49, 107 Reykjavík. Íbúðin er skráð 96,6 fm með sérinngangi og hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum. Eignin er á annarri hæð og skiptist í eldhús, stóra stofu og borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og svalir. Yfir íbúðinni er stórt ris sem er ekki talið með í fermetratölu, en það býður uppá fjölbreytta nýtingu. Sameiginlegur garður er í góðri rækt og má nefna að beint fyrir utan stofugluggann stendur gullregn sem springur út um hásumar. Sérinngangur er að íbúðinni og er fín geymsla í sameign í kjallara. Allar nánari upplýsingar veita Ólafur Stephensen, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 777 0777 og [email protected] eða Styrmir Bjartur Karlsson, framkvæmdastjóri og lfs., í síma 899 9090 og [email protected]

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT

Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóð teppalögð forstofa og teppalagður stigi upp í íbúðarhluta með sérinngangi. 
Stofa og borðstofa: Rúmgóð og björt stofa og borðstofa, stórir gluggar með útsýni út í sameiginlegan garð. Parket á gólfi. Útgengi á góðar svalir frá borðstofu. Rennihurð á milli stofu og borðstofu. 
Eldhús: Hvítar viðarinnréttingar, gott skápapláss, uppþvottavél, eldavél, helluborð, ísskápur og flísar á gólfum og veggjum
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parket á gólfi og stórum fataskápum með speglum á.
Barnaherbergi: Gott herbergi með parketi á gólfi og tveimur gluggum.
Baðherbergi: Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, hvít innrétting með vaski, baðkar, handklæðaofn og salerni. 
Ris: Brattur stigi gengið frá forstofu upp í ris.
Risið er yfir allri íbúðinni og hægt er að nýta á ýmsan máta. Leikherbergi, geymsla eða hugsanlega framtíðar stækkun. 

Auðveldlega hægt að breyta skipulagi til að fá 3 svefnherbergi. 

Helstu endurbætur að sögn seljanda:
- Húsið var steinað árið 2024
- Nýtt þak var smíðað árið 2024
- Nýtt dren var lagt í kringum allt húsið árið 2026
- Nýlegt gler í gluggum

Staðsetning:
Reynimelur er í hjarta Vesturbæjar, rólegri og grónni íbúðargötu. Stutt er í alla helstu þjónustu, Vesturbæjarlaug, Háskóla Íslands, miðbæ Reykjavíkur, skóla og leikskóla. Gönguleiðir meðfram sjónum og útivistarsvæði eru í næsta nágrenni. Staðsetningin hentar jafnt pörum, fjölskyldum, námsfólki og þeim sem vilja fjárfesta í eign á traustum stað.
Helstu stóru viðhaldsverkin utanhúss eru nýafstaðin og framundan því lítið viðhald.

Nánari upplýsingar veita:
Ólafur Stephensen, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 777 0777 og [email protected] 
Styrmir Bjartur Karlsson, framkvæmdastjóri og lfs., í síma 899 9090 og [email protected]

Eignin Reynimelur 49 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 202-7075, birt stærð 96.6 fm.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Styrmir Bjartur Karlsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Croisette Iceland ehf
Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík
Croisette Iceland ehf

Croisette Iceland ehf

Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík
img

Styrmir Bjartur Karlsson

Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík
Croisette Iceland ehf

Croisette Iceland ehf

Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík

Styrmir Bjartur Karlsson

Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík