Lýsing
Þrjú svefnherbergi (voru áður fjögur), rúmgóðar stofur, eldhús, baðherbergi, þvottahús innan íbúðar og svalir.
Helstu kostir eignarinnar:
- Þrjú svefnherbergi.
- Björt og rúmgóð stofa og borðstofa.
- Nýlega uppfært eldhús með góðu skápaplássi og borðkrók.
- Nýlega uppfært baðherbergi með "walk-in" sturtu og glugga.
- Sérþvottahús innan íbúðar.
- Stór fataskápur í hjónaherbergi.
- Djúpar skjólgóðar suður-svalir.
Forstofa og gangur: Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp. Þaðan tekur við gangur sem tengir saman rými íbúðarinnar.
Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð samliggjandi rými með stórum gluggum, harðparket á gólfi. Gott rými er fyrir setustofu, stórt borðstofuborð og aukinn setukrók eða vinnuaðstöðu eftir þörfum. Áður var svefnherbergi þar sem borðstofan er.
Eldhús: Með hvítri nýlegri innréttingu, viðarlitum borðplötum og góðu vinnu- og skápaplássi. Ofn í vinnuhæð og gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu. Tveir gluggar veita góða birtu og við þá er notalegur borðkrókur. Flísar eru á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með miklu skápaplássi, harðparket á gólfi. Úr herberginu er útgengt út á svalir.
Tvö önnur svefnherbergi: Herbergin eru með ljósu harðparketi. Þau nýtast sem barnaherbergi, gestaherbergi eða vinnuherbergi eftir þörfum.
Baðherbergi: Bjart baðherbergi með glugga, sturtu með glerþili, upphengdu salerni, handlaug í hvítri skúffuinnréttingu, speglaskáp og handklæðaofni. Ljósar flísar eru á veggjum við sturtu.
Þvottahús: Sérþvottahús inn af eldhúsi með glugga góðum skápum, skolvaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Svalir: Suður-svalir með aðgengi úr hjónaherbergi og plássi fyrir lítið borð og stóla. Mjög rúmgóðar svalir.
Geymsla: Stór sér geymsla um 10fm. í sameign
Í sameign er hjóla- og vagnageymsla.
Á síðustu árum hefur verið ráðist í ýmsar endurbætur á húsinu:
Þakjárn, þakrennur og niðurfallsrör hafa verið endurnýjuð, ásamt nær öllum gluggum hússins. Allar hliðar hússins, að framhlið undanskilinni, hafa verið lagfærðar og málaðar eða klæddar. Áætlanir um framkvæmdir á framhlið hafa verið kynntar en ekki verið samþykktar. Þá hafa verið settar upp fjórar nýjar rafhleðslustöðvar og sorpskýli.
Staðsetning:
Fjölskylduvæn eign á góðum stað í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Göngufæri er í leik- og grunnskóla og stutt í verslanir og aðra þjónustu. Víðistaðatún og Hellisgerði eru í næsta nágrenni og bjóða upp á fjölbreytta útivist.. Þá er stutt í miðbæ Hafnarfjarðar með sínum notalegu kaffihúsum, veitingastöðum og mannlífi.
Fyrir nánari upplýsingar:
Helgafell fasteignasala - sími: 566 0000
Rúnar Þór Árnason, lgf., [email protected]
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.