Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Styrmir Bjartur Karlsson
Vista
parhús

Drafnarstígur 5

101 Reykjavík

134.900.000 kr.

1.310.982 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2000989

Fasteignamat

117.150.000 kr.

Brunabótamat

69.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1889
svg
102,9 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

CROISETTE kynnir í einkasölu Brekkuholt við Drafnarstíg 5, einstakan steinbæ á einum eftirsóttasta stað í gamla Vesturbænum. Húsið stendur við rólega íbúðargötu með höfnina, gamla bæinn og miðborgina í stuttu göngufæri.

Brekkuholt hefur verið endurgert og stækkað af alúð, með áherslu á að varðveita sögu þess og upprunalegan karakter. Sýnileg steinhleðsla, gegnheil eikargólf og góð náttúrulega birta skapa hlýlegt og persónulegt heimili þar sem gamalt og nýtt mætast á fallegan hátt.

Íbúðarrýmið er allt á einni hæð, með opnu eldhúsi, bjartri stofu, borðstofu og tveimur svefnherbergjum. Skjólgóð einkaverönd í bakgarði býður upp á notalega útiveru. Undir hluta hússins er rúmgóður kjallari með sérinngangi og fjölbreytta nýtingarmöguleika. Skráð stærð hússins er 102,9 fm og stendur það á 227 fm eignarlóð. Eigninni fylgja tvö einkabílastæði, sem er sjaldgæft á þessum slóðum, auk þess sem mögulegt er að koma þriðja bílnum fyrir á lóðinni.


Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali, í síma 663 6700 eða á [email protected] og Elín Auður Traustadóttir í síma 858 0978 eða á [email protected].

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLT

Nánari lýsing:
Húsið hefur verið mikið endurgert og stækkað í áföngum, með áherslu á að varðveita upprunalegan karakter þess samhliða endurnýjun innviða og bættri nýtingu rýmis. 
Stofa, borðstofa og eldhús mynda bjart og opið alrými þar sem upprunaleg steinhleðsla fær að njóta sín. Skáloft, kvistir og þakgluggi auka birtu og rýmistilfinningu.Baðherbergi er með baðkari og sturtuaðstöðu, náttúrusteini á gólfi og gólfhita.
Svefnherbergin eru tvö og bæði á sömu hæð og önnur íbúðarrými hússins.
Baðherbergið er baðkari með sturtuaðstöðu og pláss fyrir þvottavél. Náttúrusteinn er á gólfi með gólfhita.
Kjallarinn er rúmgóður og nær undir alla stofu og borðstofu, er með um tveggja metra lofthæð og sérinngangi að framan. Rýmið nýtist í dag sem geymsla en býður jafnframt upp á ýmsa möguleika til frekari nýtingar. Grunnflötur kjallarans stærri en skráð stærð hans gefur til kynna.

Söguleg sérstaða
Húsið er einn hinna fáu varðveittu steinbæja borgarinnar og tilheyrir sérstakri húsagerð sem á sér mikilvægan sess í íslenskri byggingarsögu og menningararfi.
Ytra byrði hússins er friðlýst, sem undirstrikar sögulegt gildi þess og mikilvægi varðveislu þessarar einstöku húsagerðar.

Framkvæmdasaga:
Húsið hefur verið endurbætt frá grunni og stækkað í áföngum, með virðingu fyrir sál og útliti gamla steinbæjarins. Gólfhiti er í völdum rýmum.

Eftirfarandi yfirlit er samkvæmt upplýsingum eiganda:

2006 til 2019
Grunnendurbætur, kjallari og lóð
• Kjallari var grafinn út, dýpkaður og breikkaður þannig að lofthæð varð um tveir metrar. Steyptar undirstöður voru tengdar upprunalegri steinhleðslu og gólf í stofu og borðstofu endurbyggð með stálbitum.
• Raflagnir og rafmagnstafla endurnýjaðar ásamt vatnslögnum, hitalögnum og frárennslislögnum innan húss og út að stofnlögnum.
• Einangrun endurnýjuð og innveggir klæddir birkikrossviði og gifsi. Upprunaleg steinhleðsla var lagfærð, hreinsuð og gerð sýnileg í meira mæli.
• Eldhús flutt aftar og endurbyggt.
• Baðherbergi endurgert frá grunni, gólfhiti settur þar og í forstofu.
• Öll gólf flotuð og lögð 22 mm gegnheilu eikarparketi, en náttúrusteinn lagður í forstofu og baðherbergi.
• Gluggar endurnýjaðir, Velux þakgluggi settur yfir eldhús og gluggi í stofukvisti endurnýjaður.

Lóð og ytra byrði:
Húsið var heilmálað, lóðin hreinsuð og timburpallur byggður. Í bakgarði var steypt plata fyrir fyrirhugaða stækkun og viðbótarherbergi. Skotrenna milli húsanna var endurnýjuð og hafist handa við endurnýjun ytri klæðningar. Dren endurnýjað og rakavarnir yfirfarnar.

2022 til 2026
Stækkun, breytt skipulag og ný ytri klæðning
• Forstofa stækkuð, inngangur færður framar og skápapláss aukið. Öðru svefnherbergi bætt við að aftan og rými við eldhús aukið.
• Eldri klæðning fjarlægð og undirliggjandi timburklæðning yfirfarin og endurnýjuð eftir þörfum. Öndunardúkur settur á þak og veggi, sem voru síðar lektuð og klædd litaðri álbáru.
• Nýjar þakrennur og niðurfallsrör úr áli sett upp.
• Eldri gluggar gerðir upp og málaðir og útihurð gerð upp og máluð.
• Nýjum gluggum og nýrri garðhurð komið fyrir og öll gerefti endurnýjuð.
• Timburverönd aðlöguð og yfirborðsmeðhöndluð.
• Rafmagnsúttak og vatnskrani sett upp í bakgarði.
• Útilýsingu komið fyrir í þakskeggi og umhverfis húsið.
• Jarðvegsskipt að framan, jarðvegsdúkur lagður og möl sett yfir vegna bílastæða.

Nánari upplýsingar veita: 
Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða [email protected] 
Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða [email protected]


Eignin Drafnarstígur 5 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-0989, birt stærð 102.9 fm.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

 

Croisette Iceland ehf

Croisette Iceland ehf

Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. ágú. 2015
24.350.000 kr.
44.000.000 kr.
65 m²
676.923 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Croisette Iceland ehf

Croisette Iceland ehf

Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík