Lýsing
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: [email protected]
Forstofa er með marmaraflísum á gólfi.
Hol er með parketi á gólfi og skápum, þar er einnig stigi upp á efri hæð hússins.
Stofa er með parketi á gólfi, gasarinn og úr stofu er útgengt á rúmgóðar suðursvalir með miklu útsýni yfir borgina. Stofan er á efri hæð hússins.
Eldhús er með korkflísum á gólfi, eldri viðarinnréttingu með flísum á milli efri og neðri skápa. Inn af eldhúsi er búr þar er dúkur á gólfi og skápar.
Svefnherbergin eru 4 upprunalega en eru nú búið að gera eitt herbergi úr tveimur, parket á gólfum og skápar.
Baðherbergi er með flísar í hólf og gólf, baðkar, sturtuklefi, handklæðaofn, wc, innrétting í kringum vask og gluggi með opnanlegt fag.
Þvottahús er með flísum á gólfi, vaskur og hillur og þaðan er líka útgengt út í garð bakatil.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.