Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Víðir Arnar Kristjánsson
Vista
fjölbýlishús

Bergstaðastræti 13

101 Reykjavík

69.900.000 kr.

638.356 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2259036

Fasteignamat

88.300.000 kr.

Brunabótamat

50.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1975
svg
109,5 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
Þvottahús

Lýsing

Valhöll kynnir bjart og rúmgott 109,5 fm rými á jarðhæð með sérinngangi í Þingholtunum. Í dag er eignin nýtt sem hárgreiðslustofa en er teiknuð og samþykkt sem íbúð. Tveir inngangar eru í rýmið og tveir bakinngangar út á baklóð. Mikil lofthæð.

Þetta er húsnæði sem býður upp á mikla möguleika t.d. að nota það undir verslun, hárgreiðslustofu, vinnustofu eða breyta því til baka í íbúð eða íbúðir o.s.frv.


Í dag skiptist eignin í tvo sali, eldhúskrók, tvö bakherbergi og snyrtingu. Geymsluloft er yfir rýminu að hluta.

Einstaklega vel staðsett eign í miðbæ Reykjavíkur þar sem göngufæri er í verslanir, veitingastaði, kaffihús og alla helstu þjónustu.

Húsið var málað að utan árið 2022. Sá hluti hússins sem íbúðin er í er byggður árið 2002 en eystri hluti hússins er byggður árið 1975 og er allt húsið skráð byggt það ár.

Húsið að utan er klætt með sléttu- og báruáli, nema syðsti hlutinn. Gluggar eru úr áli að utan og timbur að innan.

Húsgjöld eignarinnar eru núna 22.136 kr. á mánuði.

Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

img
Snorri Björn Sturluson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Snorri Björn Sturluson

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. nóv. 2006
9.115.000 kr.
29.000.000 kr.
107.6 m²
269.517 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Snorri Björn Sturluson

Síðumúla 27, 108 Reykjavík